Prestafélagsritið - 01.01.1924, Qupperneq 50
46
Sigurður P. Sívertsen:
Prestafélagsritið.
En þeir eru ekki látnir einir. Þeir hafa sér til aðstoðar
fjölda leikmanna, sem eiga sinn þátt í hinu margbreytta safn-
aðarlífi. Sýna opinberar skýrslur bezt hve víðtæk þátttaka
leikmanna sé í kirkjulegri starfsemi. Þær telja að utanþjóð-
kirkjusöfnuðirnir á öllu Englandi hafi um 50 þúsund leikprédik-
urum á að skipa, en nálega 400 þúsund sunnudagaskólakenn-
urum. Við þá starfsmenn bætast svo allir þeir, sem aðstoða í
söngflokkum og sem hljóðfæraleikarar, við líknarstarfsemi, í
félöguin o. s. frv. — Einnig innan þjóðkirkjunnar starfar fjöldi
leikmanna prestum og djáknum til aðstoðar. Eru t. d. sunnu-
dagaskólakennarar þjóðkirkjumanna taldir um 200 þúsundir.
Mentun þessara mörgu leikprédikara og sunnudagaskóla-
kennara er, eins og gefur að skilja, næsta mismunandi. Meðal
þeirra eru hámentaðir menn, þótt ekki séu lærðir guðfræð-
ingar, og aðrir, sem mentun hafa hlotið aðeins eins og al-
ment gerist. Ahuginn er vígsla og köllunarbréf þessara leik-
manna, og hafa margir ágætir og mikilhæfir menn verið í
tölu þessara óvígðu kennimanna.
En hvernig er mentun prestanna á Englandi? — munu
menn spyrja.
Mentun ensku prestanna er æði mismunandi, þótt undarlegt
megi virðast. Kemur það bæði af því, að prófkröfur háskól-
anna eru nokkuð ólíkar og kostur á að taka þar bæði minna
og meira próf, en einnig af hinu, að biskuparnir geta prófað,
og eru þá kröfurnar til slíks biskupsprófs komnar undir venj*
um þess biskupsdæmis og undir biskupinum, sem prófar.
Hvert biskupsdæmi hefir sínar venjur og ákvæði í þessum
efnum, svo að um sameiginlegar kröfur, er gildi um alt, er
ekki að ræða innan biskupakirkjunnar, og þá því síður hjá
ulanþjóðkirkjumönnum.
Einum presti kyntist eg, sem stundað hafði nám utan há-
skóla og síðan tekið biskupspróf. Hafði hann fyrst orðið
djákni og tekið djáknavígslu, eins og tíðkanlegt er í biskupa-
kirkjunni. Vígðist því næst sem aðstoðarprestur (curate), en
var sjálfstæður sóknarprestur (vicar), þegar eg kyntist honum.
Allir aðrir prestar og guðfræðingar, sem eg kyntist og átti