Prestafélagsritið - 01.01.1924, Qupperneq 54
50
Sigurður P. Sívertsen:
Presiafélagsriliö.
að enska þjóðin gæti orðið samhuga um að gera alt, sem í
hennar valdi stæði, til þess að koma í veg fyrir stríð í fram-
tíðinni.
En ekki virtist mér, að menn legðu minni hug á að efla
frið og samvinnu meðal kirkjudeilda og kirkjufélaga, bæði
innanlands og um víða veröld.
Samvinnutilraunir í þessa átt voru byrjaðar skömmu fyrir
heimsstyrjöldina, og átti biskupakirkja Bandaríkjanna upptökin.
En sameiningarstarfseminni hefir aukist mjög fylgi eftir stríðið
og hefir biskupakirkjan enska beitt sér fyrir henni. Sendi síð-
asti almenni enski biskupafundurinn í Lambeth-höllinni í Lond-
on 0 út ávarp til kristninnar og áskorun um sameiningu
kirknanna til bróðurlegrar samvinnu. Er þar tekið fram, að
ekki sé stefnt að því að gera alla eins í kenningu og kirkju-
siðum, heldur að hinu, að fá alla lærisveina Krists til að
koma sér saman um nauðsynlegustu grundvallaratriði og til
að taka höndum saman til samvinnu, til þess að fjölbreytnin
innan hristninnar, í stað þess að gera ógagn, mætti verða til
víðtækrar blessunar, svo að kirkjan geti betur náð tilgangi
sínum, að vera, »öllum alt«.1 2)
Hér skal ekki farið út í að lýsa kirknasameiningarstarf-
seminni utan Englands3), en þess skal getið, að boðskapur
Lambeth-fundarins, vakti mikla athygli víðsvegar um Eng-
land og hefir leitt til meiri samvinnu meðal kirkjufélaganna
þar en nokkur dæmi eru til áður þótt enn hafi ekki tekist
að finna heppilegan ytri sameiningargrundvöll.
Sérstaklega þótti það merkilegur viðburður í þessu samein-
ingarmáli, þegar æðsti maður og fulltrúi ensku biskupakirkj-
unnar, erkibiskup Kantaraborgar, í júlímánuði í fyrra sumar seni
heiðursgestur heimsótti fjölmennustu deild »meþódista«4) og
ávarpaði þá með áhrifamikilli ræðu á aðalfundi þeirra í Bristol,
mæltist til samvinnu þeirra og talaði um nauðsyn þess, að öll
1) Lambeth-fundurinn 1920. Hann sátu 252 biskupar víðsvegar að.
2) Sbr. 1. Kor. 9, 22.
3) Sbr. Prestafélagsritið 2. árg. bls. 157 nn., og 4. árg. bls. 1 nn.
4) Þá er kenna sig við Wesley og nefnast „Wesleyan Methodists".