Prestafélagsritið - 01.01.1924, Síða 77

Prestafélagsritið - 01.01.1924, Síða 77
Presiafélagsriliö. Sadhu Sundar Singh. 73 hugarþel mannsins gagnvart Guði og sannfæra manninn um fyrirgefandi kærleika Guðs. Þá sannfæringu hafði Sundar sjálfur öðlast í svo ríkum mæli. Og sú sannfæring knýr hann til að vitna um frelsara sinn og helga alt sitt líf honum. >Þegar vér sannarlega höfum með- tekið fagnaðarboðskap hjálpræðisins, verður hann í oss sá kraftur, sem knýr oss til að tala um drottin*. Þessvegna er líka þjónustan eitt það atriði í kenningu Sundars, sem hann oftast minnist á. Hinn þjónandi kærleikur lærisveina Krists á að verða öðrum mönnum sá prófsteinn, er fullvissar þá um sanngildi samfélags þeirra við drottin og blessunarríka ávexti þess. Lærisveinar drottins eiga að vera salt jarðar. En bráðni ekki saltið, kemur það að engum notum. Þessvegna verða lærisveinarnir að »bráðna« í eldi hins þjónandi kærleika, eigi aðrir að öðlast hjálpræðið fyrir þeirra tilstilli. — En þjónust- an hefir einnig gildi fyrir manninn sjálfan. Þjónustan gerir manninn hæfari til að veita viðtöku náðarstraumum guðlegs lífs. »Vatnsleiðslan, sem veitir tæru vatninu til annara, er ávalt hrein. Svo munu og þeir, sem vinna að því, að bera öðrum vatn lífsins, sjálfir haldast heilagir og hreinir og erfa guðs- ríki. Séu ekki gjafir Guðs notaðar í þágu þjónustunnar, þá eigum vér jafnvel á hættu að missa þær með öllu. Ef vér gröfum pund vort í jörðu, þá verður það fyr eða síðar frá oss tekið. Sverð andans ryðgar, hversu beitt sem það er, jafn- skjótt og vér hættum að bregða því«. í Dauðahafinu er vatnið >dautt«. Þar geta engir fiskar lifað og þó streymir í sífellu nýtt vatn inn í hafið. En það hefir ekkert útrensli, þessvegna er það »dautt«. Það veitir aðeins viðtöku, en gefur ekkert frá sér aftur. Svo mun og hver sá, sem ekki notar það, sem hann hefir af Guði þegið í þágu þjónustunnar, brátt deyja andlegum dauða. Þjónustuleysið er sálarmorð, en því meir, sem kristinn maður helgar sig þjónustunni fyrir aðra, því auðugri verður hann sjálfur af lífinu í Guði. Einu sinni var Sundar á ferð ásamt öðrum manni uppi í snæviþöktum háfjöllum Tíbets, langt frá mannabygðum. Það var aftakastormur og stórhríð og svo kalt, að þeir voru farnir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134

x

Prestafélagsritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prestafélagsritið
https://timarit.is/publication/489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.