Prestafélagsritið - 01.01.1924, Síða 79
Prestafélagsritið.
Sadhu Sundar Singh.
75
lætinganna oft til þess, að tærar lindir lifandi vatns velli fram
í hjarta mannsins. — Þjáningarnar eiga því sízt rót sína að
rekja til endurgjaldandi reiði Guðs, heldur eru þær tæki, sem
Guð í kærleika sínum stundum verður að nota, til þess að
leiða mennina til sín. Kristur sjálfur þjáist með lærisveinum
sínum, því að hann lætur þá aldrei eftir eina, þeir eru limir
á hans líkama fyrir samfélagið við hann. Lærisveinar hans
eiga þannig að uppfylla það, sem vantar á »Krists-þjáning-
arnar« (Kól. 1, 24.). Ogæfa, sjúkdómar, misþyrmingar og of-
sóknir geta ekki unnið þeim tjón, sem lifa í Kristi.
»Drengur nokkur kastaði eitt sinn nokkrum steinum upp í
tré, svo að ávextirnir féllu til jarðar. Þá mælti faðir hans:
»Sjáðu til! Þegar þú reynir að vinna trénu tjón, þá gefur það
þér góða ávexti á móti«. Mótlætið færir kristinn mann aðeins
naer Guði. Það færir manninum dýrmæta ávexti undursam-
legs friðar og gleði hjartans, ávexti sem falla bæði honum
sjálfum og öðrum í skaut. Oteljandi heiðingjar hafa snúist til
Krists, er þeir sáu þann frið og þá gleði, er skein út úr andlit-
um kvalinna píslarvotta. Svo mikil áhrif hafði deyjandi trú-
boði eitt sinn á kvalara sína, að þeir skáru úr honum
hjartað, til þess að finna þann frið og gleði, er hann sagðist
geyma þar. Trúarþrek hans sneri mörgum til Krists. Kross-
inn var bæði honum og öðrum lykillinn að himnaríki.
Það var heitasta ósk móður Sundars Singh, að hann yrði
»sadhu«, maður sem helgar alt sitt líf Guði. Og vér sjáum,
þegar vér virðum fyrir oss í einni heild líf, starf og kenningu
þessa drottins þjóns, að hún hefir fengið ósk sína uppfylta,
bótt það sé líklega ekki með þeim hætti, sem hún þá hefði
helzt kosið. Sundar Singh er sannarlegur »sadhu«. Hann
hefir gefið sig allan Guði. í djúpi sálar hans logar heilagur
eldur lifandi trúartrausts og fórnfúss kærleika. Innri maður
hans er eins og strengleikur sem andi Guðs ávalt getur leikið
Og ytri maður hans er spegill hins innra. Hver sem sér
hann og heyrir til hans, heillast af valdi persónu hans. Andlit