Prestafélagsritið - 01.01.1924, Blaðsíða 89
Preeiafélagsritið.
]ohn R. Molt.
85
var um leið skjalavörður. Þriðji maðurinn kynti sér útbreiðslu
kristindómsins í hverju landi.
Góðan aðstoðarmann þurfti hann að hafa til þess að tala
til stúdentanna. Til þess fékk hann mann, sem nú er þektur
um allan hinn kristna heim og víðar, fyrir sinn skýra vitnis-
burð um Krist, en sá maður er George Sherwood Eddy, sem
lengi hafði starfað í K. F. U. M. í Indlandi.
Kostnaður við ferð þessa var greiddur af ýmsum Ameríku-
mönnum, sem hafa áhuga á starfi Motts, og sendu þeir með
honum sérstakan gjaldkera, til þess að hugsa um peninga-
málin. í þessari austurför sást, hvílíkur andlegur stjórnvitring-
ur og herforingi dr. Mott er.
Meðan hann á ferð þessari dvaldi í Kína fékk hann tilmæli
um, að gerast sendiherra Bandaríkjanna í hinu nýstofnaða
kínverska lýðveldi. Hefði hann haft hug á góðri stöðu, sem
var við hæfi hans, þá var hér staða, sem gat freistað hans.
Sjálfur segir hann svo frá: »Akvörðunin var ekki auðveld.
Eg sá, að hér var mikið lagt upp í hendur mér, og að með
þessu mundu margar dyr opnast. En eg hugsaði um liðin 25
ár, um þá stefnu, sem eg hafði fylgt og þá reynslu, sem eg
hafði náð, og nú vissi eg, að eg átti að neita hinu virðulega
tilboði. Á þessum dögum eignaðist eg aukna sannfæringu um
kraft bænarinnar*.
Þessi nýja ákvörðun að helga líf sitt Kristi algerlega, veitti
andlegu lífi hans nýjan kraft. Menn verða einnig varir við
þennan kraft, menn finna, að kraftur streymir frá honum, er
hann talar.
Dr. Mott er ekki mælskumaður í venjulegum skilningi. Hann
slær ekki á strengi tilfinninganna og notar ekki málskrúð eða
mörg líkingarorð. En orð hans eiga hinn sannfærandi kraft,
hina rólegu, föstu rökfimi, og hann sækir sannanir frá stað-
reyndunum. Það er reyndur maður, sem talar. Menn hlusta,
hvort sem hann talar um hið trúarlega, stjórnarfarslega eða
þjóðfélagslega.
Þegar hann talar hreyfir hann sig lítið. Þegar hann leggur
sérstaka áherzlu á orðin, réttir hann fram höndina eða hreyfir