Prestafélagsritið - 01.01.1924, Síða 105
Presfstéiagsrifið. Merkileg bók um upprisu Krists. 101
legur. Síðar hafi sú skoðun komist inn, að þetta hafi gerst
suður í Jerúsalem. Menn hafi ekki skilið, að hann hafi getað
orðið áþreifanlegur, nema því aðeins að hann hafi með ein-
hverjum hætti risið aftur upp í holdlíkama sínum. Af því hafi
myndast sagnirnar um »hina tómu gröf«. Og þá var eðlileg-
ast að hugsa sér, að þessir undursamlegu atburðir: að hann
stóð mitt á meðal þeirra og lét þá þreifa á höndum og fót-
um, hefðu gerst suður í Jerúsalem, þar sem líkami hans hafði
verið jarðsettur.
Nýstárleg er meðal annars sú tilgáta Hoffmanns, að at-
burður sá, er vanalegast er nefndur Emmaus-förin, hafi farið
fram norður í Galíleu og Pétur sjálfur muni hafa verið annar
þeirra tveggja, sem sagan getur um. Og það sé sá atburður,
er bæði Páll og Lúkas geta um með orðunum: að hann hafi
»birzf Kefasi« (eða Símoni). Leiðir höf. mörg rök að þessari
skoðun sinni. Því að meginatriði frásögu þessarar telur hann
sönn og mjög mikilvæg.
Kenningunni um, að Jesús hafi í raun og veru aldrei látist
á krossinum og því lifnað aftur við í gröfinni, hafnar hann
gersamlega. En þá skoðun aðhyltist hinn nafnkunni þýzki
guðfræðingur Schleiermacher forðum, og einstöku fræðimenn
síðar, nú síðast Friedrich Spitta.
Höf. minnir réttilega á, að frásögur N. tm. beri það með
sér, að hið furðulega við Jesú eftir upprisuna sé þetta, að
hann tilheyri tveim heimum. Það sé það, sem fræðimönnun-
um hafi ávalt gengið svo illa að skilja og skýra. En sé það atriði
frásagnanna satt, þá sé upprisa hans fyrst trygging fyrir til-
veru andaheimsins. Og nútíðarmaðurinn láti sig upprisu Jesú
miklu skifta frá því sjónarmiði einu, hvort hún greiði úr vanda-
málinu um framhaldslíf manna efíir dauðann eða ekki. Frá
því sjónarmiði »sé mjög mikilsvert að fá vissu fyrir því, hvort
Jesús hafi í raun og veru birzt lifandi eftir dauða sinn, hvort
telja megi hann trygging fyrir tilveru annars heims, heims, er
hann hafi komið aftur frá sem boðberi inn í þessa jarðnesku
tilveru«. Hér ríði á staðreyndum. »Heilabrot og heimspeki-
legar íhuganir um annan heim, svo sem út frá hugmyndinni