Prestafélagsritið - 01.01.1924, Page 108

Prestafélagsritið - 01.01.1924, Page 108
104 Haraldur Níelsson: Prestafélagsritiö. inum virðist faðir hans hafa orðið þess var, og umhyggjan fyrir syninum hefir haft þessi áhrif á hinn sofandi mann, að sálin losnar úr viðjum líkamans og getur sýnt sig í eins kon- ar líkamning á öðrum stað. Tvífara-fyrirbrigðin eru inngangur að hinum eiginlegu lík- amninga-fyrirbrigðum, þeim er fengist hafa við tilraunir með beztu miðlana. Telur höf. bókarinnar þar fremst allra hinar frægu tilraunir efnafræðingsins enska, Sir Williams Crookes (frb. Krúks), með miðilinn ungfrú Florence Eliza Cook. Þær rannsóknir fóru fram árin 1872—74, og líkamningurinn, sem birtist, kona, er nefndi sig Katie King, náði svo mikilli full- komnun að lokum, að hún var eitt sinn sýnileg meðal fundar- manna nær því tvær klukkustundir í einu; hún talaði; hún söng; hún lét þreifa á sér, faðma sig, mæla slagæðina og hjartsláttinn, og hún ritaði á blað í votta viðurvist. Vísinda- maðurinn tók alls um 40 ljósmyndir af henni; á sumum þeirra sást bæði Katie og miðillinn. En prófessor Hoffmann lætur sér ekki nægja að segja frá þessu frægasta dæmi líkamningar í sögu sálrænna vísinda. Hann getur og um ýmsa aðra af frægustu líkamninga-miðl- unum, svo sem frú Elísabeth D’Esperance, enska prestinn dr. Monck, Mörthu Beraud o. fl. og merkustu tilraunirnar, er með þá hafa gerðar verið. Eg skal leyfa mér að nefna eina tilraunina, sem gerð var með dr. Monck. Viðstaddir voru þrír merkismenn, sem allir höfðu gott vit á að athuga þessa hluti: enski presturinn Stainton Moses, náttúrufræðingurinn Alfred Russel Wallace og Hensleigh Wedwood, mágur Darwins. Er miðillinn var kominn í sambandsástand, sást fyrst hvítur blettur á vinstri síðu hans, er stækkaði smátt og smátt og varð að lýsandi skýi, sem því næst varð sem súla í lögun og náði miðlinum í öxl. Þá gekk miðillinn lítið eitt til hliðar, en súlan var kyr á sínum stað. En skýkent band sást liggja frá henni inn í mið- ilinn, þar sem hvíti bletturinn hafði fyrst sést. Síðar færði hún sig 5 til 6 fet frá miðlinum; kom þá á hana mannleg mynd; sáust armar og hendur, og virtist það vera kona,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Prestafélagsritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prestafélagsritið
https://timarit.is/publication/489

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.