Prestafélagsritið - 01.01.1924, Side 117
Prestafélagsritiö.
Alþjóðafundurinn í Pörtschach.
113
ingaraðferðir, og umbætur á því svæði. Vernd gegn of-
langri verksmiðjuvinnu, o. s. frv.
3. Trúarlegt uppeldi; þar undir: Trúarbrögðin í kirkju og
skóla; trúfræðslustarf kirkju og skóla og kristilegra fé-
laga, o. s. frv.
4. Undirbúningur hinnar tímanlegu köllunar; hjálp og leið-
beining undir starf og stöðu unglinga, svo að hver kom-
ist á réttan stað samkvæmt hæfileikum sínum.
5. Heimilislíf, borgaralíf og þjóðlíf. Þýðing alls þess um-
hverfis fyrir æskulýðinn, o. s. frv.
Þetta voru efni fundarhaldanna í þessa 12 daga og tæki
það stóra bók ef ýtarlega ætti að skrifa um hvað eina. —
Dagarnir voru langir og vel haldið áfram. A morgnana kl.
6V2 söfnuðust menn saman til morgunverðar. Kl. 8 byrjuðu
fundarhöldin stundvíslega. Fyrst var stutt guðsþjónusta með
5—7 mínútna ræðu. Þá var umræðufundur um fyrirliggjandi
efni. Síðan var stutt ávarp og uppörfun til fyrirbænar. Síðan
var einn klukkutími helgaður bæn og íhugun; hver maður í
einrúmi. Svo var aftur safnast saman í flokka, þar sem málin
voru rædd ýtarlega. Flokkarnir skiftust eftir málum (enska,
þýzka, franska, skandínavamálin, 0. s. frv.). Því aðalmál fund-
arins var enska. Var þetta gert svo að allir, sem ekki væru
vel færir í ensku, gætu látið sitt álit í ljós og tekið þátt í
umræðum. — Síðan söfnuðust allir saman í eitt og rökræddu
efnin saman. Síðan var matarhlé. Þá tíminn frá kl. 2—4 ætl-
aður til hvíldar við íþróttir, og íþróttasýningar, og til samveru
og viðkynningar. Gátu þá menn af ýmsum löndum kynst og
fræðst hver af öðrum.
Eftir klukkan 4 söfnuðust fundarmenn saman í ýmsum
stöðum í minni flokkum. Gat hver valið sér þann flokk sem
hann vildi, því nú fór skiftingin fram eftir málefnum en ekki
tungumálum. í þessum flokkum voru sérstök áhugaefni hins
kristilega æskustarfs tekin til meðferðar. í einum flokknum
var t. d. talað um biblíulestur, í öðrum um undirbúning for-
ingja, í 3. flokknum um drengjadeildir, í fjórða um sumar-
bústaðastarfsemi og útilegur, og svo framvegis; voru það eitt-
8