Prestafélagsritið - 01.01.1924, Side 121
PrestaíéJagsritið.
Erlendar bækur.
117
ingar" (Profetminder) og í fjóröa kaflanum „Jesú-minningar". Eru allar
þessar minningar tengdar við hina helgu staði, sem höfundurinn kemur
til og er því altaf höfð nákvæm hliðsjón á heil. ritningu og þeim við-
burðum, sem þar er skýrt frá og tengdir eru við þessa staði. Sérstaklega
er fjórði kaflinn („Jesú-minningar") hugnæmur aflestrar, enda eru þeir
staðir, sem hann fjallar um, kunnastir úr hinni helgu sögu og eins minn-
ingarnar, sem við þá eru tengdar. Og þegar svo þar við bætist hinn leik-
andi og fjörugi ritháttur höfundarins, hinir hreinu drættir myndanna, sem
hann dregur upp meistarahendi með penna sínum, er sízt að furða þótt
bók hans verði skemtileg aflestrar. Því að það er hún flesfum bókum
fremur, sem eg hefi Iesið um þau efni, jafnframt því sem hún hefir mik-
inn fróðleik að geyma og er þrungin af andríki hins stórgáfaða höfundar
og lotningu fyrir efninu og minningunum, sem hann dregur fram af sjóði
alveg óvenjulegrar biblíuþekkingar sinnar.
Bókin er prýdd fjölda mynda, sumpart ljósmyndum, sem kona höf.
hefir tekið, en sumpart ágætum litmyndum eftir danska listakonu ungfrú
E. Hofmann-Bang.
A næsta hausti mun von á síðara bindi þessa óvenju góða ritverks,
sem verðskuldar að fá útbreiðslu einnig vor á meðal, þar sem höf. er
svo mörgum kunnur af ritum sínum frá fyrri tíð. Dr. J. H.
Arne Möller: „Islands Lovsang gennem Tusind Aar“ — Khavn
1923, Gyldendal.
Eg hefi á öðrum stað (í Lögréttu og Morgunblaðinu) rifað alllangt mál
um þessa ágætu bók Arne Möllers, og get því verið stuttorður um hana,
En því minnist eg samt á hana hér, að eg bæði vil hvetja íslenzka presta
til að eignast þetta ágæta rit, sem er brautryðjandi á sínu sviði, og
láta Prestafélagsritið flytja höfundinum einlægar íslenzkar þakkir fyrir
þá gjöf, sem hann hefir þar gefið oss. Og það geri eg hérmeð. En jafn-
framt vil eg nota tækifærið til að skýra frá því, að félagsmenn dansk-ísl.
félagsins geta fengið ritið fyrir hálfvirði (2,50), en félagsmenn „dansk-
fslenzku kirkjunefndarinnar" fá hana ókeypis um leið og þeir greiða 2
kr. fillag sitt til þess félags fyrir liðið ár. Dr. J. H.
Arne Móller: „Er Johann Gerhards Commentarius de passione
in harmoniam historiæ evangelicæ af 1617 benyttet af Hall-
grímur Pjetursson í Passionssalmerne?“ (Sérprent úr Edda 1923).
Þessi sprenglærða ritgerð Arne Möllers ber þess vott, að hann hefir
ekki lagt Hallgrímssálma á hylluna þótt fengið hafi þegar doktors-hattinn
fyrir þá. Ritgerðin er svo til komin, að höf. hefir rekið sig á ummæli
nokkur eftir séra Vigfús Jónsson í Hítardal: „að séra Hallgrímur hafi
fyrst samanskrifað commentarium yfir passionem, útlesið úr Harmonia evan-
gelica þeirra Martini Chemnitii, Polycarpi Lyseri og Joh. Gerhardi, hverja