Prestafélagsritið - 01.01.1924, Side 122
118
Erlendar bækur.
Prestafélagsritið.
hann hafi haft og brúkað. — Þenna sinn commentarium hafi hann (þ. e. Hall-
grímur) brúkað í sínum föstuprédikunum, útdregið síðan af honum kjarn-
ann, sem hann setti í ljóðmæli eður sálma". Til þess nú að fá sönnur á
hvað satt væri í þessum ummælum séra Vigfúsar, hefir dr. Arne Möller
unnið það þrekvirki að pæla gegnum þetta mikla latneska rit Gerhards
— 942 bls. í fjögra blaða broti! Ber sú iðni og elja vott um meira þrek
en eg hefði búist við að finna hjá nokkrum guðfræðing tuttugustu aldar,
sem ekki átti beint líf sitt að leysa með því, en það átti dr. M. vitan-
lega ekki, heldur gerir hann þetta knúður af kærleika sínum til Hall-
gríms og passíusálma hans. En niðurstaða þessara rannsókna styrkir eng-
an veginn nefnd ummæli Vigfúsar prests, en hefir aftur orðið til að styrkja
skoðun þá á sambandi sálmanna við „Eintal sálarinnar", sem doktors-
ritgerð Möllers hljóðar um.
Ritgerðin er skrifuð af miklum lærdómi, enda fyrir lærða menn en
ekki ólærða, sem ekki mundu hafa hennar nein not, m. a. vegna Iatn-
eskra tilvitnana höfundarins f nefnt rit Gerhards. Dr. J. H.
„Dansk-islandsk Kirkesag. Meddeletser fra Forretningsudvalget“.
4 tölublöð komu út árið 1923, samtals 88 bls. Þar birtir sóknarprestur
Thordur Tomasson siðasta hluta hinna skemtilegu ferðaminninga sinna frá
íslandsferðinni og fylgja 19 myndir, af íslenzkum kirkjum og ýmsum
kirkjunnar mönnum. Auk þessa flytur blaðið ýmsar kirkjulegar fréttir o. fl.,
í þeim tilgangi að stuðla að aukinni viðkynningu og samúð milli systra-
kirknanna. — Blaðið fá menn fyrir 2 króna félagsgjald. S. P. S.
Norskar bækur.
Olaf Moe, Dr. theol: „Apostelen Paulus hans Liv og Gerning".
— Kristiania (Aschehoug & Co.) 1923.
Eitt af beztu guðfræðiritunum, sem á markaðinn komu næstliðið ár á
Norðurlöndum, er bók sú um Pál postula, sem prófessor við safnaðar-
háskólann í Kristjaníu hefir samið og prenta Iátið. A flestum menningar-
ungum álfu vorrar hafa merk og mikil rit verið samin um hinn mikla
tposlula óumskorinna manna, Pál, — en þetta mun fyrsta vísindalega ritið,
sem kemur út um hann á nokkurri Norðurlanda tungnanna. Hafa Norð-
menn því hér orðið á undan frændum sínum í Svíþjóð og Danmörku, og
er hið stóra rit höfundi og norskri bókagerð til mikils sóma. Hér er öll
lífssaga hins mikla postula tekin til vísindalegrar meðferðar og vantar
ekkert á, að þar sé fuilnægt kröfum þeim, sem gera ber til vísindalegra
rita, þótt bókin sje að öðru leyti svo alþýðlega samin, að hver mentaður
kristinn leikmaður geti haft hennar fylstu not. Þótt höfundur teljist til