Prestafélagsritið - 01.01.1924, Qupperneq 123
Prestafélagsritið.
Erlendar bækur.
119
íhaldsamrar stefnu í guðfræðinni virðist hér alt tiilit tekið til hinna vís-
indalegu rannsókna á því sviði, sem hér ræðir um, og alt tillit tekið til
þeirrar nýrrar þekkingar, sem þær rannsóknir hafa í Ijós leitt og hlotið
hefir almenna viðurkenningu í heimi lærdómsmanna. En öll meðferð höf.
á efninu er sjálfstæð og víða bregður fyrir nýjum skilningi á ýmsum at-
riðum, þar sem höf. fer ferða sinna án þess að láta á sig fá þótt hann
sé einn á ferð.
Rit þetta ber vott um, að höf. er. víðlesinn og lærður, og kann vel að
halda á penna. En sérstaklega er hann stórlærður í nýjatestamentisfræð-
um og svo nákunnugur ritum Páls, að þar munu fáir fara fram úr hon-
um. Það er ávalt vandaverk hið mesta að rita um stórmenni vegna hætt-
unnar, sem getur verið á, að þau verði minni í höndum þess, sem ritar.
Próf. Moe hefir leyst þetta verk svo af hendi, að alt rif hans verður
fögur staðfesting þess sannleika, að Páll postuli sé eitt hið risavaxnasta
mikilmenni í andans heimi. Því miður leyfir takmarkað rúm í riti þessu
ekkí að skýra ýtarlega frá efni bókar þessarar, enda var tilgangurinn að-
eins sá með línum þessum að vekja athygli, presta sérstaklega, á
ritinu.
Bókin er 475 bls. að meginmáli í postillubroti, prýðileg að öllum frá-
gangi og í alla staði hið ágætasta og eigulegasta rit. Dr. J. H.
„Forkyndelsen. Et Livsspörgsmaal for Kirke og Folk“. Ho-
miletik af ’j. J. Jansen fhv. Sogneprest til Röken. — 3die Oplag. —
Kristiania 1923. H. Aschehoug Sí Co. — 243 bls. — Verð kr. 5,75.
Margir íslenzkir prestar munu hafa eignast prédikanasafn Jansens
prests, „Plads for Jesus“, er kom út í fjórðu útgáfu árið 1921. Færri
af prestum vorum hugsa eg að hafi lesið þessa prédikunarfræði hans,
sem nú er komin út í þriðja sinni, en fyrst kom út árið 1906. En þótt
flestum, sem lesið hafa prédikanir Jansens muni hafa þótt mikið fil þeirra
koma, þær vera vekjandi og alþýðlegar í beztu merkingu, hygg eg að
mörgum hafi farið eins og mér, að þeim hafi þó þótt enn meira koma
til prédikunarfræðinnar. Hún sameinar það tvent, sem mesta kosti má
telja á hverri bók, að vera fræðandi og leiðbeinandi og vekja áhuga
fyrir umræðuefni sínu annars vegar, en hins vegar að útlista efni sitt á
þann hátt, með dæmum úr daglegu lífi og sögulegum tilvitnunum, að
unun sé að lesa.
Þetta er ein af þeim guðfræðibókum, sem eg vildi óska að hver ein-
asti af prestum vorum gæti eignast og Iesið vandlega. I henni eru svo
margar ágætar bendingar, sem að gagni mega verða fyrir þann, er vanda
vill prédikunarstarf sitt, og hún vekur til umhugsunar, glæðir áhuga og
opnar nýtt útsýni, jafnframt því á ógleymanlegan hátt að leggja áherzluna á
það, sem ávalt hefir verið og hlýtur að verða þungamiðja og aðalatriði
í allri kristilegri prédikun.