Prestafélagsritið - 01.01.1924, Side 125
PresiafélassritiÐ.
Erlendar bækur.
121
Sænskar bækur.
„Svenska Kyrkans Ársbok 1924. Fjárde árgángen". — Stockholm.
Svenska Kyrkans Diakonistyrelses Bokförlag.
í árbók þessari er, auk almanaks, margvíslegur fróðleikur um kirkjur
Norðurlanda, hag evangelisku kirkjunnar á Þýzkalandi, um ensku kirkj-
una, o. fl., o. fl. — Ytarlegast er sagt frá sænsku kirkjunni, hag hennar,
starfsemi inn á við og út á við og starfsmönnum. Einnig eru yfirlitsgrein-
ar um kirkjulíf í Danmörku, Noregi og Finnlandi og helztu kirkjulega
viðburði þar á liðnu ári. Um kirkju Islands er ekki nein yfirlitsgrein, en
skráð eru nöfn kirkjumálaráðherra, biskups vors og vígslubiskupa og
kennara guðfræðideildar Háskólans, og skýrsla, samkvæmt manntalinu
1920, um mannfjölda, tölu prófastdæma og prestakalla og skiftingu lands-
manna eftir trúarflokkum.
Handhæg bók fyrir þá, er fylgjast vilja með í kirkjulegum málum ná-
grannaþjóðanna.
„Gud er vár tillflykt". En samling betraktelser av Erwin Gros. Be-
myndigad översáttning av Oscar Mannström. — Svenska Kyrkans Dia-
konistyrelses Bokförlag. Stockholm 1923. — 168 bls.
Hugvekjusafn þetta er samið af þýzkum sveitapresti í Thiiringen. Hefir
höfundurinn ágætt Iag á að tala um sannindi kristindómsins á þann hátt,
að það verði minnisstætt og lesturinn aðlaðandi og skemtilegur. Veldur
því skáldlegur búningur og ve! notuð dæmi úr daglegu Iífi og úr heimi
bókmentanna. Hugvekjurnar eru 75 talsins, allar stuttar, og bókin kostar
óbundin 3 kr. sænskar.
„Vagar till Kristus“. Efterlámnade föredrag av C. W. Borgstrand
(Komminister i Borás). — Svenska Kyrkans Diakonistyrelses Bokförlag.
Stockholm 1923. — 36 bls. — Verð 75 aur. sænskir.
í kveri þessu eru tvö Iaglega samin erindi eftir sænskan prest, annað
um efnishyggju og trúarþrá mannsins, en hitt um sögulegar heimildir
kristindómsins og leiðirnar til Krists.
„Nágra Jesusord som icke förekomma i vára evangelier.
Sammanstállda av Adolf v. Hárnack“. — Stockholm. S. K. D. B. 1923.
— 14 bls. — Verð 75 aurar sænskir.
Hér eru prentuð 20 ummæli, sem eignuð eru ]esú, en ekki eru í nýja
testamentinu. Fylgja örstuttar athugasemdir og upplýsingar um heimildir
ummælanna, samdar af hinum fræga þýzka guðfræðingi, prófessor Adolf
v. Harnack.