Syrpa - 01.01.1920, Blaðsíða 9
S Y R P A
3
um frumsömdum á íslenzku (Sagan eftir J. M. Bjarnason : „í
Rauðárdalnum“, heldur áfram til enda — nú eftir fullur þriðj-
.ungur af henni).
2. —Frumsamdar og þýddar ritgerðir um ýms mikilsvaröandi
mál, sem á dagskrá eru í heiminum.
3. —Um merka menn, fyr og nú.
4. —Stuttar ritstjórnargreinar um ýms efni.
5. —Góð, frumort ljóð.
6. —Um landbúnað: ýmislegt er lýtur að akuryrkju, kvikfjár-
rækt, o. s. frv.. og vorða má bændum til gagns og leiðbeiningar.
„Bóndi er bústólpi, bú er landstólpi“ engu síður nú, en þegar
forfeður vorir bjuggu til þenna málshátt, og því mun SYRPA
leggja áherzlu á búnaðarbálkinn, enda býst liún við að hafa
aðal-styrk sinn hjá bændastéttinni, eins og að undanförnu.
7. —Sitt af hverju : Samtíningur af ýmiskonar fróðleik, svo
sem nýjar uppgötvanir, merk mannvirki, o. s. frv.
8. —Vandaðar myndir af ýmsu tagi,
9. —Móðurmálið: Um orð og orðaskipun, sem slæðst hefir inn
í íslenzkuna — bæði í ræðu og riti — en sem ætti að útrýma.
Fyrirspurnum viðvíkjandi þessu efni verður svarað í SYRPU.
10. —Bókafregnir : Nýjar, merkar bækur, bæði á íslenzku og
öðrum málum, og stuttir dómar um þær, er því verður við
komið.
11. —Skrítlur, hnyttileg svör o. s. frv.
Auðvitaó verður ekki alt, sgm að ofan er nefnt, í hverju
hefti SYRPU. en áformið er að hafa hvert hefti sem allra f jöl-
breyttast.
Eins og gefur að skilja, verður SYRPA ekki fréttablað í
sama skilningi sem vikublöð og dagblöð, en í ritgerðum verður
skýrt frá gangi merkra mála i aðgengilegri búningi en vanalega
er gert í blöðum ; og sérstaklega verður leitast við að hafa frá-
sögnina algerlega óhlutdræga og ólitaða af flokksfylgi — byggja
hana á þeirn áreiðanlegustu gögnum, sem föng eru á.
Verðið á hinni stækkuðu SYRPU höfum við ákveðið $2.50
um árið, og er það liið sama og ritið hefir kostað að undanförnu,
miðað við stækkunina. En aukist kaupenda-tala mikið. eða út-
gáfukostnaður lækki til muna, höfum við hugsað okkur að
stækka ritið enn meir (auka arkaf jölda á ári), eða lækka verðið.
Eins og stendur er ómögulegt að setja verðið lægra, ef fyrir-
tækið á að verða til frambúðar. Við stígum þetta spor—að
stækka SYRPU---Í því trausti, að allir gamlir kaupendur haldi
áfram að kaupa ritið og að margir nýir bætist við.
Félagsnafn okkar. sem útgefendur SYRPU, er :
„THE SYRPA PUBLISHING COMPANY “.
Ólafur S. Thorgeirsson. Sigtr. Jónasson.