Syrpa - 01.01.1920, Blaðsíða 23

Syrpa - 01.01.1920, Blaðsíða 23
S YRPA 11 ari og eilskulegri en sólin. ÞaS var ekkert eins unaðsfult og að sjá iiana brosa og vierða fyrir hinu anögga tilliti hennar — hinu töfr- andi augnaráði. Grasið, sem. hún steig á, var honum helgidómur. Og jafnvel skugginn hennar varhonum eins og lífgandi geisli; það avalaði sálu hans að sjá skugga hennar bregða fyrir í fjarlægð. — Hjartað hans héit áfram að syngja dag og nótt, en það bréytti um lag og sló á annan streng en áður; það sóng nú um kvenlega feg- urð, um el'skendur og ei'lífa ást. “O, hvenær var rósin svo rjóð og sæt—svo rjóð og sæt í skógi!"—Kristinoitinn kom með ótal mjúk og kostuleg dýraskinn og væna feldi og gaf hinni ungu, elskulegu, hvítu mær. Honum fanst bros ihennar verða altaf þýðara og blíð- ara og augnatillitið segja meira og meira. Og að lokum fanst honum að augnaráð 'hennar segja: “Eg elska þig, rauði maður, eg elska þig — elska þig!># — Hann varð að láta hana vita það, að hann elskaði hana 'iíka, alveg eins heitt og hún hann — ef til vill enn heitara. Hann varð að hafa hug til þess, að segja henni það. Hann vissi, að konur élska hugprúða menn. Hann vissi, að feimnir og hugdeigir menn eru viðurstygð í augum Indíána- kvenna. Var ekki hjartaiag 'hvítra kvenna einsi1 Hann gekk öruggur á fund hinnar ungu, hvítu stúlku, sem hann elskaði, og lagði enn marga dýrafeldi fyrir 'fætur hennar. Ennþá þakkaði hún með mörgum fögrum orðumj ennþá brosti hún blíðlega, og enn- þá leit hún til hans hýrum augum. “Eg elska þig!” sagði hinn ungi Indíáni og breiddi út faðminn. En það var ógæfa hans. Hin hvíta mæx hrökk ifrá honum. “Vogar þú?” sagði hún, stapp- aðifæbí gólfið og ifórnaði ihöndum. “Vogariþú að móðga migl’ hrópaði hún, varð dreyr-rauð í framan af geðshræringu og hljóp í burtu frá honum og dýra'feldunum hans. ---- Hinn ungi, ásthrifni Kristinoti misskildi nú ekki 'lengur augnati'llit stúlkunnar. Hann vissi ihvaða afleiðingar þetta gat halfit -fyrir hann. Hvítir menn mundu hata hann til dauðans. Faðir stúl-kunnar mundi sitja um líif hans. Hann varð að flýja! ---- Og hann flýði langt --- langt í burtu, langt frá öllum hvítum mönnum og vinum hvítra manna. — En hjartað hans hélt áfram að syngja — var altaf stöðugt að syngja. Og einhver óglögg, angurvær rödd, einhversstaðar í undirdjúpum sálar hans, tók undir með hjarta-nu. Hjartað hafði samt enn einu sinni breytt um lag----sló nú á annariega strengi — og söng um sorgina og sársaukann, söng um myrkrið og nóttina og---daúðann. “Ó, sóley, hvað sorgin er þung!" -------Hann gekk um skóginn, lengi, lengi. Hann gekk fram á hamrana háu við Efravatn. Tunglið óð í skýjum. Storm-urinn hvein og öskraði. Vatnið sauð og vall. Hvítar vofur -stigu hringdans á ölduhryggj- unum. Þær kinkuðu kolli. “Viltu vera með?” sögðu hvítu vofumar. Auðvitað vildi hann vera með. Hann hljóp fram á fremstu klettasnösina, hrópaði heróp hátt og hvellt, -og kastaði sér fram af bjarginu. —- Það þaut ömuriega í lævirkjatrjánum, og það fór hrollur um álimviðinn á bakkanum. — Hinn ungi, hráusti Krist- inoti var nú kominn í hinn eilífa ihringdains. — Og nú var búið að

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.