Nýjar kvöldvökur - 01.10.1943, Blaðsíða 9

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1943, Blaðsíða 9
N. Kv. SÆNSKIR HOFÐINGJAR 149 Ura Kaipa varð nauðugur viljugur að stíga með fætinum ofan á hnakka hans. — Við erum vitni, Ura Kaipa! hrópuðu þeir með miklum fögnuði. í dag hefir þú tekið einn „hinna leiftrandi“ þér fyrir þræl. Karilas fannst alveg eins og hann hefði verið höggvinn laus frá sjálfum sér. — Hvað var hann nú, þegar hann átti sig ekki einu sinni sjálfur? Nú, þegar honum var runnin reiðin, sá hann fyrst, hversu heimskulega hann hafði farið að ráði sínu. Hann hugg- aði sig þó lítið eitt við það, að Ura Kaipa átti nú að verða húsbóndi hans. — Ura Kaipa andvarpaði djúpt, en hann var hræddur við að láta aðra verða vara við veikleika sinn. — Stattu upp, sagði hann stuttlega, og farðu til þrælanna. Þetta kveld talaði höfðinginn ekki mikið. Snjónum hélt áfram að hlaða niður; og þegar komið var undir nótt, komu öldung- arnir aftur saman við blótsteininn. — Vér lröfum galið alla vora galdra og vér höfum fórnað, kveinuðu þeir, en samt hættir ekki að snjóa. Nú ætti að líða að vori og næturnar eru farnar að styttast, en þó liggur snjórinn hár eins og veggur hér í kringum oss! — Og svo laus er hann, að liann getur ekki borið skíðin. Þess vegna getum við ekki farið á veiðar. Þrælarnir svelta, og það er naumast að hægt sé að fá þurran kvist í eldinn. — Þetta er ekki land, senr menn geta lifað í! Sól! Sól! hefir þú yfirgefið oss. Snýr þú aldrei hingað aftur? Ura Kaipa fórnaði höndum og hrópaði: — Nei, þetta er ekki land, sem menn geta lifað í! Sól! hefir þii falið þig í dal skugganna undir jörðinni, og sendir oss nú aðeins gráa þoku í stað dagsins? Stjörnur eru engar til lengur yfir oss, aðeins hinn fjúkandi snjór! ísdauði! Hungurdauði! nú kenrur þú og tekur oss! Þegar þrælarnir lieyrðu kveinstafi höfð- ingjans, fleygðu þeir blysunum og tróðu þau undir fótunr. Og einnig þeir æptu: — Sól! Sól! hefir þú yfirgefið oss. — Þú verður að reyna að færa enn eina fórn, Ura Kaipa, sögðu öldungarnir. — En þú verður að velja þann fegursta og mikil- lræfasta af þrælum þínum. Og þú veitzt sjálfur, að það er enginn annar en Karilas. Á nreðan ætlunr við að senda menn upp á klettinn til þess að gá að, hvort sólin kenr- ur ekki. Ura Kaipa þagði. En hann sneri sér und- an, þegar blótgyðjurnar konru með Karilas, lögðu liann á blótsteininn og teygðu úr hon- unr. Svo tóku þær tvo granna trjástofna og lögðu sinn hvoru megin við hann, bundu lrendur lrans og fætur traustlega á þann lrátt, að önnur lrönd og annar fótur var festur við hvern staur. — Þær voru allar æfagamlar kerlingar og kengbognar. — Eins og allir aðrir voru þær klæddar í skinn, en það var ekki loðið, heldur málað með svörtum og hvítum strikum og hringum. — Sú elzta stakk hann í öxlina með stein- hníf, en ekki meira en það, að hún aðeins fékk dropa af blóði á hnífsoddinn. Ura Kaipa tók við hnífnum af henni, og fór svo inn í kofann ásamt öldungunum. Þar inni var jörðin vandlega þakin af hellu- steinum, sem voru hreinir og vel sópaðir, því að ekkert fyrirleit Ura Kaipa-fólkið eins, mikið og mold jarðarinnar. Hendur höfð- ingjans máttu aldrei snerta mold, og enginn vildi vinna neitt, sem krafðist þess að mold- in væri hreyfð. — Vér, sem erum veiðimenn og fiskimenn og tilbiðjilm sólina, var vana viðkvæði hjá þeim — hvers vegna skyldum vér heiðra moldina? Hún er mynduð af rotnandi hræj- um dýra og jurta, og þess vegna er moldin óhrein. Á miðju gólfinu var breidd dýrshúð yfir hinn heilaga brunn. Ura Kaipa tók hana til hliðar með mikilli lotningu og lýsti niður yfir vatnið í brunninum með logandi spýtu. í hinni hendinni hélt hann á hnífnum með blóðdropunum. Það lagði hráslagaloft upp
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.