Nýjar kvöldvökur - 01.10.1943, Blaðsíða 52

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1943, Blaðsíða 52
182 VITASTÍGURINN N. Kv. „Já, þú skiptir bróðurlega á milli okkar, það er þó satt.“ Gottlieb var eini maðurinn, sem brætt gat klakann í Kröger, einkanlega þegar þeir minntust stúdentsdaganna. Margsinnis halði Gottlieb boðið honum lieim til sín, en alltaf árangurslaust. Kröger læknir hélt sig utan við heiminn og allar lians lystisemdir. Gestir höfðu eigi kornið á hans heimilr í mörg ár, og öllum var kunnugt, að hann óskaði þess að £á að lifa í friði sem einsetu- maður. Þekktu flestallir ástæðurnar fyrir þessu og virtu þær. Þjónustufólk kom þar aldrei inn fyrir dyr. Gamall sjómaður var þar major domus (þ. e. heimilisbryti“). Hann hafði áður verið bryti á Ameríku- skipi og hét Martínus, en var aðeins kallað- ur Tínus. Hann var sístarfandi og alltaf önnum kafinn, lítill og kubbslegur og smá- skrítinn. Hann hafði litla gullhringi í eyr- unum, stubbunef og dálítinn skúf af rauð- um geithafurstoppi á hökunni. Tínus eyddi ekki tímanum í óþarfa hjal og mælgi. Helzt sagði hann aðeins: „já, já,“ og „nei, nei,“ eða þá „allright“ og „to be sure“. Hann var sem sé hreykinn af því, að hann kunni ensku, frá því að hann var á Ameríkuskip- inu. Honum var illa við að þurfa að and- mæla öðrum. Það kom sem sé stundum fyrir í versta hrakviðri og rosa, að læknir- inn fann upp á því að segja við hann til reynslu: „Það er gott blessað veðrið í dag!“ „Já, já, veðrið verður víst gott, to be sure,“ svaraði Tínus. Þegar Gottlieb hafði setið stundarkorn og bjóst síðan til að fara, sagði Kröger allt í einu; „Geturðu ekki stjaldrað við hérna í dag og borðað hjá mér? Tínus getur eflaust náð í eitthvað ætilegt handa okkur.“ Gottlieb gat ekki dulið undrun sína. „Ætlarðu að fara að stofna til veizlu, hö-hö!“ „Það er eðlilegt, að þér komi þetta dálítið kynduglega fyrir sjónir. Til þessa dags lief- ir mig mjög lítið langað til að vera samvist- um við aðra, nema í lækniserindum. Hjarta- strengir þínir hljóma, en mínir eru slakir og slitnir. Nú hefir þú samt snert hárödd- ina, gamli vinur, og vakið ofurlítinn veikan tón; þess vegna langar mig nú til að hafa þig hjá mér í kvöld.“ „Já, auðvitað vil ég það, þó það nú væri. En geturðu ekki fyrst farið með mér yfir um og litið á geníið? Þú verður að reyna að „kúrera" hann!“ „Jú, gjarnan það. En áður en við förum, verð ég að gera Tínusi aðvart um jafn mark- verðan atburð og það, að maður eigi að borða hjá mér. Þú mátt trúa því, að hann verður jafn hissa og þú sjálfur." Læknirinn fór fram, og kom inn aftur að vörmu spori. Síðan gengu báðir vinirnir á- leiðis ofan að ferjustaðnum. Tínus skildi ekki vitund í öllu þessu. Nú höfðum „við“ lifað í friði og spekt í heil sjö ár, án þess að ókunnugir væru að „káss- ast upp á rnann". Héðan af yrði nú e£ til vill sífellt gestastand af alls konar fólki. En ef það yrði upp á teningnum, þá ætlaði hann að reyna að komast aftur í gömlu stöðuna sína á Ameríkuskipinu. Já, það skyldi hann svei mér gera! Hann fór síðan ofan í bæ til að kaupa ýmislegt góðgæti í matvörubúðinni. Læknirinn liafði sagt hon- um að kaupa eitthvað „verulega gott“. Er hann kom inn í búðina, hitti hann ívarsen kaupmann, sem var önnum kafinn við að velja handa sjálfum sér úr því bezta, sem um var að ræða í búðinni. Fyrst hann varð nú að neita sér um borgundarvínið, varð hann að afla sér einhverra annarra lífsins gæða. Hann varð forviða, þegar hann sá innkaup Tínusar, og sagði: „En góði Tínus, ætlið þér að fara að halda veizlu.“ „Já, já, við ætlum að halda veizlu.“ „Á læknirinn von á gestum?“ „To be sure, hann á von á gestum.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.