Nýjar kvöldvökur - 01.10.1943, Blaðsíða 29

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1943, Blaðsíða 29
N. Kv. BÆKUR 163 nokkrum þætti atvinnu- og menningarlífs Islendinga iiafi verið jafnvel lýst og barátt- unni við björgin í Hornstrendingabók. í þættinum Dimma og dulmögn eru all- margar þjóðsagnir og sögur. Allar vel sagð- ar og margar nýstárlegar að efnismeðferð. En merkast í þeim þætti er forspjall höf- undarins. Er það tvímælalaust bezt ritaði kafli bókarinnar. Hornstrandir hafa frá öndverðri íslands- byggð verið einn afskekktasti hluti lands- ins. En Hornstrendingabók færir byggðina og fólkið upp í fang lesandans, ef svo mætti að orði kveða. Svo ljóslifandi eru lýsinga'r höfundar að manni þykir, sem þarna sé maður þaulkunnugur eftir lestur bókar- innar. Frágangur bókarinnar er lrinn fegursti, en smámisfellur á prófarkalestri lýta hana þó nokkuð. Myndir eru állmargar og prýði- lega teknar. En samt hefði verið bókarbót að fleiri myndum af útbúnaði við bjarg- sigið. Á síðari árum hefir margt bóka um þjóð- sagnir og þjóðleg fræði komið út á íslenzku, og sem betur fer virðist sem vinsældir þeirra vaxi fremur en þverri. En allt um það þótt margt sé þar vel skráð og sagt, er enginn vafi á, að Hornstrendingabók er í hinni fremstu röð bóka um íslenzk fræði. Er vonandi, að höfundur hennar eigi eftir að taka önnur viðfangsefni í þeirri grein og mundi því vel fagnað af öllum unnendum þjóðlegra fræða. Elinbordé Lárusdáttir: Strandarkirkja. Akureyri 1943. Utgefandi Þorsteinn M. Jónsson. Hver mun sá íslendingur vera, er eigi kannast við Strandarkirkju í Selvogi. Um langan aldur hefir hún þótt öllum stofnun- um betri til áheita. Og jafnvel á vorum dögum, þá heita menn enn á Strandar- kirkju allt um öll raunvísindi og efnis- hyggju og þykir gefast vel. Það væri því sízt að undra, þótt slík kirkja yrði skáldum að yrkisefni, og nú hef- ir Elinborg Lárusdóttir goldið Torfalögin með mikilli skáldsögu. Sagan hefst með hinni fornu þjóðsögu, sem segir frá stofnun Strandarkirkju, og er lýst þeim átrúnaði á kirkjuna, sem smám saman hafði þróast í Selvoginum jafnframt því sem sandurinn eyddi byggðina, og sveit- armenn misstu auð og álit. En annars fjall- ar sagan um baráttu prestsins, séra Einars Jónssonar, við að fá kirkjuna flutta utan af eyðisandinum og heim í Vogsósa. Er þar fylgt sannsögulegum heimildum, og var séra Einar prestur í Vogsósum um miðja 18. öld. Prestur hafði sér til fulltingis bisk- up, prófast og amtmann, en á móti stóð fólkið í fátækri sókn og fámennri. Það hefði því mátt líta svo út, að auðsótt yrði að koma kirkjunni brott, en verndardýrlingar henn- ar og sr. Eiríkur, galdrameistarinn þjóð- frægi, héldu uppi vörnum fyrir henni, og veittu þar með andspyrnu sóknarmanna stuðning. Ýms undur gerast, þegar flytja á kirkjuna, og ná þau hámarki, er Þórelfur, glæsilegasta heimasæta sveitarinnar, sem legið hefir fótlama í nokkur ár, rís upp af sjúkrabörum, sem hún hefir verið borin á í kirkjuna, og gengur út. Prestur neitar því, að kraftaverk hafi gerzt, en bændurnir loka nú fyrir honum kirkjunni, og um líkt leyti andast biskup og prófastur, en amtmaður hrökklast frá völdum. Skilur sagan loks við prestinn beygðan og bugaðan, en Strandar- kirkja er óhreyfð á sandinum enn í dag. En inn í meginsöguna fléttast örlagaþættir fólksins í Selvogi. Einkum tveggja helztu heimilanna, Ness og Vindáss. Er þar sögð ástarsaga þeirra Þórelfar í Nesi og Þórhalls í Vindási. Er saga þeirra full af rómantík, en vafasamt hvort alstaðar sé með hana far- ið af raunsæi. Framkoma Þórelfar við Geir- rúnu, barnsmóður Þórhalls, er einstæð, en að vísu gerir höfundur Þórelfi fremur helga mey en mennska konu. Hinsvegar er Geir- 21*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.