Nýjar kvöldvökur - 01.10.1943, Blaðsíða 47

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1943, Blaðsíða 47
N. Kv. VITASTÍGURINN 177 ir. Og af mörgum tók hann alls enga borg- un. Á hinn bóginn var hann illræmdur fyr- ir orðbragð sitt og framkomu við viðskipta- menn sína. Sumir sögðu, að hann væri „ókurteis og ruddalegur“, aðrir að hann væri „ónærgætinn og ósvífinn“, en öllum bar saman um það, að hann væri eins við alla og gerði sér engan mannamun. ívarsen kaupmaður var einn þeirra, sem biðu læknisins. Hann gat þakkað það Krög- er lækni, að hann var aftur kominn á stúf- ana. Já, auðvitaðungfrúEvensenlíka,aðein- hverju leyti; en fyrir það hafði hann líka veitt lienni auknaþóknun. Hann liafði ætíð fylgt þeirri reglu að Ijúka þegar hverjum reikningi. Ivarsen hafði fyrir löngu gert sér ljóst, hvernig hann ætti að taka Kröger lækni. Það dugði ekki að láta hann mót- spyrnulaust komast upp með það að hreyta í mann eintómum skózum og ónotum, held- ur var um að gera fvrir þann, sem þóttist minni máttar, að reyna samt að bíta frá sér eftir megni. Þegar ívarsen kom inn í stof- una til læknisins þennan dag, sagði Kröger við hann: „Jæja, það var þá gaman að sjá yður aft- ur á fótum,-ívarsen, þótt þér séuð ekki „á háleistunum". ívarsen var ekki almennilega ljóst, hvernig hann ætti að endurgjalda þessa dulbúnu sneið, en er hann hafði varp- að mæðinni rækilega, sagði liann: „Ojá, það er nú staðreynd með tilslökun- um, þetta með fæturna. Það er vonandi ekki hættulegt, læknir?“ „Hættuleg? Hm! Hafið þér ekki heyrt, að hringt er þrisvar á strandferðaskipinu, áður en það leggur af stað?“ „Ju-ú,“ sagði ívarsen hæglátlega, „það hefi ég nú heyrt.“ „Nú hefir hringt í fyrsta sinn. í annað sinn verður landgöngubrúin tekin. Og enn er ef til vill tækifæri til að stökkva í land; en í þriðja sinn verðið þér að fara með, hvort sem þér viljið það eða ekki.“ „Ég get nú ekki sagt, að mig langi bein- línis til að fara ennþá,“ sagði ívarsen. „Það er svo margt, sem ég þyrfti að ráðstafa áð- ur.“ „Lappa upp á, eigið þér víst við?“greip læknirinn fram í. „Þeirri „lappamennsku“ þarf læknirinn ekkert að skipta sér af. Getið þér aðeins lappað ofurlítið upp á fótinn á mér, mun ég sjá um allt hitt sjálfur!“ Það var farið að síga í Iversen. Kröger læknir brosti; honum geðjaðist vel að því, þegar menn svöruðu fyrir sig. ívarsen hypj- aði sig af stað, en hann var stundarkorn að búa sig. Hann komst ekki hjá því að heyra, livað læknirinn sagði við madömu Eik, ljós- móðurina, sem var orðin áttatíu og þriggja ára gömul. Hún var að barma sér yfir því, að sér væri farið að förlast sýn. „O, þér hafið svei mér séð nóg um ævina, kona góð, þér þurfið ekki að sjá meira.“ ívarsen flýtti sér að komast út. Það var ekki að vita, hvaða „áletrun“ honum kynni að lilotnast. Gottlieb hafði gengið út í garð- inn. Hann vildi ekki sitja inni í mollu- loftinu í biðstofunni. „Geturðu hugsað þér nokkurn verri stað en biðstofu hjá lækni?“ sagði Gottlieb við Ivarsen. „Nei,“ svaraði ívarsen, „jafnvel mein- fyndinn maður gæti grátið yfir því, að sjá allar þessar sjúku manneskjur." „Það er þá ennþá dálítið eftir að þínu góða skapi, ívarsen.“ „Ojá, ofurlítið er enn eftir, Bramer, en það er skolli þunnt.“ „Þunna ölið kemur eftir á, segir gamalt máltæki," sagði Gottlieb. „Það væri vandalaust, ef ég fengi öl! Nei, karl minn, mjólk, mjólk, mjólk. Og ég, sem hefi ekki bragðað mjólk, síðan ég var árs- gamall, og nú er ég sextíu og tveggja!“ „Þetta eru örlög guðanna, Ivarsen," sagði Gottlieb. „Já, það er farið að hallast á hjá Bakkusi gamla,“ sagði ívarsen hlæjandi, um leið og 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.