Nýjar kvöldvökur - 01.10.1943, Blaðsíða 48

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1943, Blaðsíða 48
178 VITASTÍGURINN N. Kv. hann kvaddi og gekk ofan götuna. Hann stakk lítið eitt við á vinstra fæti, þegar liann gekk. Það var eins og að biðstofan sú arna ætl- aði aldrei að tæmast. I sífellu og með löngu millibili kom fólk út þaðan — hölt kona, liálfblindur maður með blá gleraugu, drengur með handlegginn í fatli. Og hjá þeim öllum ríkti sama hugsun og þrá: að verða frískur aftur! Allt treysti fólk þetta Kröger lækni. Úr þessu dökka og leiðinlega húsi átti hjálpin að koma. Auðvitað varð Drottinn líka að hafa hönd í bagga með, en Kröger var nú samt efstur í huga þeirra og vonum. Gottlieb gekk niður með spíreu-girðing- unni, upp og niður, meðan öll eymd heims- ins og armæða staulaðist fram hjá honum og þreifaði fyrir sér. Allt í einu heyrði hann hófatak. Það var sjaldgæft liérna uppi í brekkunni, þar sem vegurinn var bæði mjór og brattur. Gottlieb gekk út að hlið- inu og nam þar staðar steinhissa. Niðri í brekkunni sá hann brúnu vagneykina feitu frá Bjarkasetri stíga þungt til jarðar, svo að gneistar sindruðu úr grjótinu. Hann sá þá beita líkamsþunga sínum til að draga hjálm- vagninn upp brattann. Þetta var gamli vagninn, sem hékk í sterkum stálfjöðrum og vaggaðist til og frá, þegar ekið var. Hann sá mágkonu sína, frú Elenóru Bramer sitja einsamla í vagninum. Gottlieb gekk aftur inn í garðinn. Hvað skyldi hún vilja Krö- ger lækni? Sérstaklega eftir árekstur þeirra um daginn. Það var honum með öllu ó- skiljanlegt. Vagninn nam staðar fyrir utan, og Gott- lieb gekk út að honum. „Ert þú hérna, Gottlieb? spurði hún for- viða. „Já, alls staðar er eitthvað að, heiðraða mágkona, hö-hö.“ „Þú virðist þó vera stálhraustur að vanda!“ „Það er veikur vinur minn hjá mér,“ sagði hann. „Hefirðu rúm til þess í litla húsinu þínu? Ég hélt, að þar væri ekkert gestaher- bergi?“ „Rúm til þess? Hamingjan góða, já, ríku- legt. Hann liggur í svefnherberginu mínu, og ég á legubekk í vinnustofunni.“ „Mér þykir þú heldur en ekki fórnfús." „Engin fórn er of stór, þegar manni er ljóst, að hann gerir gott með því,“ sagði hann alvarlega. „Nei, ef til vill ekki,“ sagði hún annars liugar, „en heldurðu, að læknirinn veiti viðtal núna?“ „Ég hefi nú beðið heila klukkustund, og enn eru einhverjir eftir. Hann benti á bið- stofuhurðina. í sömu svifum kom þar út móðir, sem leiddi barn sitt. Höfuð barnsins var þéttsett sárum með gulum og grænum skorpum og hrúðrum. „Huff, en hvað þetta er ægilegt," sagði frúin. „Svona er lífið, Nóra. Sástu móðurina? Andlit hennar ljómaði af gleði, vegna þess, að læknirinn hefir gefið henni góðar vonir.“ „Vesalings manneskjur,“ sagði hún. „Segðu það ekki! Hún er glöð sökum þess, að hún getur hjálpað barni sínu, og verði það frískt aftur, mun lífið brosa við henni í fullkominni sælu.“ Ekki var að sjá, að frú Bramer væri hon- um sammála. Hún steig út úr vagninum og fylgdist með honum inn um hliðið og upp að húsinu. Þegar þau gengu fram lijá van- hirtu jarðarberja-beðunum, nam hún stað- ar og sagði: „Hér virðist vanta hlúandi hönd.“ „Þú veizt sennilega, að eiginkvinna hans reyndist að vera óeiginleg." „Ekki hefi ég heyrt það. Við heyrum yf- irleitt ekkert utan að á Bjarkasetri; við er- um sjálfum okkur nóg.“ „Það ættuð þið ekki að vera,“ sagði hann. Hún leit upp hálfhissa, en samkvæmt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.