Nýjar kvöldvökur - 01.10.1943, Side 31

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1943, Side 31
N. Kv. BÆKUR 165 En nú lætur hann sér ekki draga það og sendir frá sér þrjár kvæðabækur í einu, er heita Kræklur, Olnbogabörn og Hnoðnagl- ar. Eru þær alls nær 500 síðum og pappír þó betur nýttur en oft er títt í ljóðabókum. Eins og nærri má geta, kennir margra grasa í safni Kolbeins. Þar eru margar ferskeytlur, minningarljóð, náttúrulýsingar, söguljóð, ástakvæði o. s. frv. Skal hér ekki dómur lagður á skáldskap einstakra kvæða, en margt er þar vel sagt og víða snjallt að orði kveðið. Hagmælska Kolbeins er mikil. Hann leikur sér að sléttuböndum og hring- hendum og kveður Jteilar drápur undir hrynhendum hætti, en fyrir kemur þó, að hann grípur til rangra orðmynda. Annars er orðaval hans rnikið og kjarni í máli. Kol- beinn ann stökunni og öllu því, sem rannn- íslenzkt er. En samt sem áðnr hættir honum til að verða of langorður í hinum stærri kvæðum. Það er erfitt að segja um það, hvað lang- líft muni verða af því, sem ritað er á vorum dögum. En trúað gæti ég því. að ýmsir hefðu gaman af að blaða í bókum Kolbeins í Kollafirði, á meðan einhverjir eru til, sem unna íslenzkri vísnagerð. Sindbað vorra tíma. —• Isafoldarprent- smiðja. Reykjavík 1943. Þetta er sjálfsæfisaga æfintýramanns, er víða fer og margt reynir. Þegar frá bernsku þráir hann að komast á sjóinn og honum tekst það, en ekki biðu hans þar neinir sældardagar. Sakir sjóndepru gat hann ekki fengið skipstjórnarréttindi, en náði þó skipstjórn á hinn furðulegasta hátt. Um eitt skeið sigldi hann til Suðurhafs- eyja í leit að týndum fjársjóðum. Varð hann þar skipreika á eyðieyju, og oftar lenti liann í hinum furðulegustu æfintýrum og háska sakir fífldirfsku sinnar. Loks sezt hann að í Bandaríkjunum, og af hendingu tekur hann að rita frásagnir af ferðum sínum. Verður hann á skömmum tíma vinsæll rithöfundur, en ekki gat hann sagt skilið við sjóinn með öllu. Heldur brá hann sér í hin djörfustu siglingaæfintýri meðan hann skrifaði' bækur sínar. Oll er frásögnin fjörleg og heldur áhuga lesandans föstum. Er enginn vafi á, að þeir, sem gaman hafa af sjóferðasögum munu lesa bókina með ánægju. En hún segir einn- ig frá þreki og ráðsnilld manns að bjarga sér, þótt móti blási. Hersteinn Pálsson hefir þýtt bókina, og virðist mál á henni gott. Segir hann í eftir- mála, að hinn gamli sægarpur og rithöfund- ur, Sveinbjörn Egilsson, liafi lagt sér lið um þýðingu ýmissa orðatiltækja úr sjó- mennsku, og má þar segja, að „sá kló er kunni“. Udet ilugkappi. Rvík 1943. ísafoldar- prentsmiðja. Kver þetta er þáttur úr sjálfsæfisögu þýzks flugkappa, og segir frá ýmsum æfintýrum hans í síðustu heimsstyrjöld og eftir stríðið. Frásögnin er lifandi, og munu vafalaust ýmsir hafa gaman af að lesa hana, a. m. k. þeir, sem áhuga liafa á flugafrekum. Hersteinn Pálsson hefir þýtt bókina. Steindór Steindórsson frd Hlöðum. SJÖ MÍLNA SKÓRNIR, ferðasaga um fjórar heimsálfur, eftir hinn heimsfræga, ameríska ferðamann og rithöfund Richard Halliburton, barst N. Kv. í þann veginn er þær voru að fara í prentun. — Þessarar skemmtilegu ferðasögu verður getið síðar. LEIÐRÉTTING. Prentvillur, ekki allfáar, hafa skeðzt inn í grein Snæ- bjarnar Jónssonar í síðasta hefti, en flestar þeirra mun athugull lesandi lesa í málið. Hér skal þess aðeins getið, að í efstu línu síðara dálks á bls. 128 á að standa bjarmar líka (ekki líka bjarmar), og í 7. línu síðara dálks á bls. 130 á að standa okkar raunalega innibyrgði (ekki okkar raunalegi, innibyrgði).

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.