Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Síða 8

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Síða 8
2 EGILL ÞÓRLÁKSSON N. Kv. um á Akureyri í tvo vetur. Síðan fór hann í Kennaraskólann í Reykjavík og lauk kenn- araprófi vorið 1910 eftir eins vetrar nám. Haustið 1910 réðst hann sem kennari í Bárðardal og var farkennari þar 5 ára tíma- bil. Næstu þrjá vetur var hann heimiliskenn- ari á Akureyri. En Iiaustið 1919 fluttist hann til Húsavíkur og gerðist kennari við Itarnaskólann þar. Gegndi hann því starfi í samfelld 20 ár, eða þar til 1939, að hann fluttist aftur til Akureyrar, og hefir verið kennari við barnaskólann á Akureyri síðan. Hreppstjórinn í Bárðardal heitir Páll H. Jónsson og þekkja hann margir. Hann hefir lengi búið með rausn á Stóruvöllum, gam- alkunnu ættaróðali. Kona hans heitir Sig- ríður Jónsdóttir. Þegar Egill var kennari í Bárðardal, áttu þau gjafvaxta dóttur, Aðalbjörgu að nafni. Hún þótti kvenkostur mikill í sjón og raun. Þessa hreppstjóradóttur tók Egill með sér úr dalnum, auðvitað með hennar fúslega samþykki, og eftir að hafa gif/.t henni, því að hann er maður, sem ætið fer að lögum. Búa þau saiman síðan; hafa ekki eignazt börn, en alið upp eina fósturdóttur. Er Að- albjörg kona, sem allir, er kynnast, virða mikils. Samkvæmt framansögðu hefir Egill nú, þegar hann er sextugur, stundað barna- kennslu hátt á fjórða tug vetra. Auk þess var hann forstöðumaður barnaheimilis að Laugaskóla í þrjú sumur. Hann hefir samið stafrófskver og lesbæk- ur fyrir börn og átt þátt í vali skólaljóða. Um hann er óhætt að fullyrða, að hann hefir verið réttur maður í kennarastétt. En hann hefði líka getað verið réttur maður á fleiri stöðum, ef hann hefði þang- að valizt. Hann hefir hæfileika og rnann- kosti til að gera vel á mörgum vettvöngum. Ég man, að mér þótti gaman að sjá hann skára grösugan völl í Húsavík, — og skemmtilegt að hlusta á skraf hinnar skörpu eggjar, sem hann brýndi í ljá sinn. Gangnamaður frá Bárðardalsafrétt hefir sagt mér ánægjulega sögu um dug hans sem félaga síns í leitum þar. Ég hefi oft dáðst að rithönd hans og ósk- að þess, að sem flest handrit væru með þeirri snilldar hönd. Mér er vel kunnugt, enda fer það ekki dult, að hann býr yl'ir miklum hagleik og vandvirkni, sem iðnaður landsins hefði sannarlega haft gott af að njóta. Rithöfundarhæfileikar og hagmælska hafa honum verið gefin í ríkum mæli, þótt hann láti lítið á bera. Hann er einn þeirra manna, sem mikils- vert liefði verið, að útgáfan hefði haft mörg eintök af á boðstólum. Þau mundu hafa gengið út í allar áttir. Það er talið vandlifað fyrir barnakenn- ara. Foreldrar eru vandfýsnir í þeirra garð, vegna bárna sinna, — og eiga líka að vera það. Kennararnir hafa tekið að sér að ann- ast hlutverk, sem miklar skyldur fylgja. Eng- ir opinberir starfsmenn bera meiri ábyrgð á því, að þjóðin verði hamingjusöm en ein- mitt þeir. Þetta stafar af því, að þeirra verk er að rækta sálarlífið, — og hamingjan er fyrst og fremst sálræn. Aldrei heyrði ég það sagt í Húsavík, að Egill Þórláksson gerði ekki skyldu sína — og frá Akureyri hefir það ekki frétzt heldur. Skylduræknin, sú mikilsverða dyggð, er óvenjulega sterkur þáttur í eðli hans. Hún er ekki hjá honum — eins og sumum — döp- ur yfir erfiði sínu. Nei, hún er glöð. Þess vegna er sólskin gleðinnar í kennslustund- um hans. í þessu sólskini finnst smábörnun- um „leikur að læra“ og verður „leikur sá kær“. Sú saga gengur manna á milli hér í Húsa- vík, að einu sinni hafi lítil telpa, sem fór í skólastund í fyrsta sinn, verið spurð að því, þegar hún kom heim aftur, hvað hún hafi lært. „Ekkert," svaraði hún, „en ég kenndi

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.