Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Qupperneq 11

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Qupperneq 11
WN. Kv. KYNLEG HUNDGÁ OG NEYÐARÓP 5 kvöldið áður. Seint hið sama kvöld hafði allt heimafólk í Tungunesi heyrt hávær neyðarköll og angistaróp neðan frá Blöndu. Allir lieimamenn þar fóru út á hlað til að hlýða á þessi óhugnanlegu hljóð. Heyrð- ist öllu fóíkinu kallað: „Hjálp! Hjálp! Ég ferst.“ Heyrði afi rninn, sem var talinn með afbrigðum gætinn og gerhugall um flest, er hann lét sig nokkru skipta eða renndi hug að, þessi kynjaköll í myrkrinu, eigi síður en aðrir, enda hefði hann eigi sent mann yfir að Æsustöðum, ef hann hefði ætl- að, að þessi óhljóð neðan frá Blöndu væri skynvilla ein eða hugarburður. Þá er föður mínum bárust þessi tíðindi, lét hann þegar söðla hest sinn og fór í. skyndi fram að Ból- staðarhlíð að finna þá Eirík og Guðmund að máli og vita, livort Jaeir hefðu ekki orðið einhvers varir, er þeir fóru með viðardrög- ur sínar fram Æsustaðaskriður og frarn með Blöndu þá um kvöldið. Óttuðust menn á Æsustöðum, að einliver hefði drukknað í Blöndu undanfarandi kvöld. Var jm vað á henni niður undan Túngunesi, á svokölluð- um Strengjum, en hún er þar straumhörð og stórgrýtt í botni. Þurfti eigi miklu að munaj að eitthvað bæri út af á'Stréngjunúm í þreif- andi náttmyrkrinu, ekki ’sízt ef einhver hefði verið drukkinn á ferð, sem einatt bar við á þeirn árum. En Blanda er, sem kunnugt er, hið versta forað og hefir orðið margs rnanns bani um dagana. En það er af ferð föður míns að segja, að þá er hann hitti Guðmund í Bólstaðar- hlíð, sagði hann honum, að Jreir Eiríkur hefðu einskis orðið áskynja á leiðinni milli Hlíðar og Æsustaða kvöldið áður, ekkert lteyrt nema niðinn í Blöndu og Svartá, samræður sjálfra sín og til lestarinnar, er hún seig áfram hægt og þungt í nætursort- anum. Voru þeir þó á ferðinni um sama feyti, sem óhljóðin lieyrðust í Tungunesi og hæst lét í hundunum á Æsustöðum. Hefðu þeir þó átt að lieyra köllin betur en þau heyrðust á hlaðinu í Tungunesi, þar-ú sem þeir voru á ferð fast við ána, sumstaðar að kalla á bakkabrúninni, eftir því sem veg- urinn (eða vegleysan) lá á þeim árum. Ak- brautin liggur miklu liærra nú en göturnar lágu þá. En Guðmundur í Hlíð fræddi föð- ur minn á því, að á leiðinni fram eftir hefði hann sagúEiríki í Djúpadal frá því, hvernig Jrað atvikaðist, að tveir merkisbændur, J^eir Hannes í Ljótshólum í Svínadal og Hannes Gíslason á Fjósurn, ein hin frægasta refa- skytta hér á landi „um sína daga“ og „auk þess heppinn smáskammtalæknir,“ hefði fyr- ir fáeinum árum drukknað í Blöndu nálægt Jreim slóðum, er Jreir lestamennirnir fóru um kvöldið. Fórust Jreir á svokölluðu Mó- vaði, er þá var fjölfarið vað á hinni ófrýnu móðu, en síðar hvarf.1) Sá var háttur Blöndu í ungdæmi mínu', að hún skipti oft um vöð, os>' laoðist Móvað niður í æsku minni, að o o 7 minnsta kosti um hríð. Aldrei spurðist neitt til þess, að nokkur hefði farizt í Blöndu Jaennan dag, er Jressi undur gerðust, né held- ur, að nokkur hefði horfið í nágrenninu né næstú sveitum né nokkur verið þar á ferð Jretta kvöld. Þótti þá sýnt, að eigi hefði hundgáin á Æsustöðum né angistarópin neðan frá Blöndu stafað af því, að nokkur liefði koiiiizt í hann krappan á ferð yfir hana í haustnæturmyrkrinu. En skömmu síðar, mig minnir nákvæm- lega viku síðar, lagðist afi minn, Erlendur í Tungunesi, banaleguna og lézt eftir hálfs- mánaðarlegu eða nálægt því. Trúðu sutnir því, að Jiessi atburður hefði verið fyrirboði feigðar lians og láts. II. Frásögn af Jressum atburði færði eg í letur á skólaárum mínum samkvæmt umtali við dr. Jón Þorkelsson yngra. Ætlaði hann, að því er mér skildist, að birta hana í þjóð- sagnasafni, sem liann hafði í hyggju að gefa út. En hvergi hefir hún verið prentuð, 1) Frá drukknun þeirra Hannesanna er sagt í Frétt- um frá íslandi 1882, bls. 47.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.