Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Qupperneq 13

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Qupperneq 13
N. Kv. KYNLEG HUNDGÁ OG NEYÐARÓP 7 voru á ferð fram að Bólstaðarhlíð. En samt verður að minnast þess hvors tveggja, að ná- kvæmar rannsóknir hafa eigi farið fram á tímanum, sem þessi fyrirbrigði gerðust á,i og klukkur voru misseinar eða misfljótar i sveitum á þeim árum, jafnvel á næstu grann- bæjum. Það var því nokkurt vandhæfi á að tiltaka með nákvæmni, hverjum tíma at- burðir gerðust á. En því verður samt ekki haggað, að skammt hefir liðið milli þeirra atriða þriggja, sem ég minntist á. Veltum fyrir oss hugsanlegum skýringum á þessum fyrirburði. Sleppum algjörlega þeirri trú sumra hjátrúaðra, þót't liún verði ekki beinlínis hrakin, fremur en mörg önnur hjátrú, að hann sé í einhverskonar sambandi við fráfall Erlends í T.ungunesi, fyrirboði þess eða þess háttar. Að henni virðist ekki eyðandi alvarlegri hugsun né orðum. En þeirri spurningu skýtur ósjálfrátt upp, þótt henni verði að líkindum aldrei fullsvarað, hvort óhljóðin, sem heyrðust í hundunum á Æsustöðum, og hjálparköllin, sem heyrðust í Tungunesi, geti ekki hafa verið í einhvers konar dulrænu sambandi við samræður þeirra lestamannanna um drukknun þeirra Hannesanna. Með slíkri getgátu er ekkert gefið í skyn um, að þeir Hannesarnir sjálfir né hugir þeirra hafi verið á reiki á þessum helvegi þeirra þá um nóttina. Annars væri fróðlegt að rannsaka, hvort hundgá gæti heyrzt frá Æsustöðum yfir að Tungunesi, ef vel væri hljóðbært. Mér þykir s'líkt, eftir fjarlægðinni, næsta ósennilegt. En ef rannsókn leiddi í ljós, að slíkt kynni að geta átt sér stað, þótt ótrúlegt sé, mætti enn fremur spyrja, hvort hér væri ekki um skyn- villu eða misheyrn að ræða, hvort þeim, er fyrst heyrði hljóðin.hefði eigi heyrzt hunda- gelt vera mannshljóð, og aðrir heimamenn síðan trúað, að þeir heyrðu slíkt hið sama. Virðist þó heldur ósennilegt, að afi minn, er var, sem áður segir, orðlagður fyrir varúð og gætni, hefði villzt á hundgá úr mik'lum fjarska og mannlegu neyðarópi. En vera má, að heyrn hans hafi verið tekið að hnigna. Heyrnardeyfa mun og vera kynfylgja í einni ættkvísl hans. En ég hefi samt aldrei heyrt, að liann hafi heyrt illa né borið hafi á, að lieyrn hans hafi bilað á efstu árum hans, enda var hann eigi nema 68 ára, er hann lézt. Annars gelta hundar oft af litlu tilefni. Ef það kæmi upp úr kafinu, að liundgá gæti heyrzt frá Æsustöðum yfir að Tungunesi, mætti líklega telja gátuna ráðna. Væri þessi atburður þá valið dæmi þess, hvernig þjóð- sögur verða til, hversu eðlilegir atburðir, en fremur fátíðir, breytast í „dulræn fyrir- brigði“. Segjurn hins vegar, að það kæmi í ljós við tilraunir, að hundgá gæti ekki heyrzt frá Æsustöðum yfir að Tungunesi. Af slíkri staðreynfl yrði tæplega komizt hjá þeirri ályktun, að eitthvað hlutlægt, nokkuð, sem var fyrir utan kvikindi, menn og lifandi manna hugi, hefði gerzt eða verið á sveimi þetta kveld milli Tunguness og Æsustaða, og hafi slíkt valdið ólátum hundanna á öðr- um bænum og hljóðunum, sem fólkinu á hinum bænum heyrðist koma neðan frá jök- ulvatninu. Og þá fljúga oss ósjálfrátt í hug viðræður þeirra lestamannanna, sem áður er getið um. Sigurðnr Guðmundsson.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.