Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Page 17

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Page 17
N. Kv. EINN Á FANNBREIÐU 11 „íslendingur er eg,“ hugsaði hann. „ís- lendingur gefst ekki upp fyrr en í fulla hnef- ana. Islenzkir bændur hafa öldum saman orðið að þreyta ójafnan leik við trylltar höf- uðskepnur og hafa líka stundum lotið í lægra haldi fyrir þeim. En Hallur í Mörk, — hann er nú ekki á þeim buxunum að gefast upp!“ Og tíminn leið. Myrkrið grúfði yfir, þrungið óhugnaði og geig. Halli fannst hann hafa gengið óraveg, og ekki bólaði á nokkrum bæ. — Hvað var þetta? Örskammt fram undan grillti í eitthvað. Hann herti gönguna og kom að melhól, sama hólnum, sem hann liafði farið frá fyrir langri stundu. „Fari það í logandi —!“ hreytti Hallur út á milli herptra varanna. „Villtur, villtur!" Honum féll allur ketill í eld. í heita — svarta! En hvað tjáði að bölva? Var ekki nær að biðja, biðja til guðs og allra heilagra? Ekki var hann vanur því; alltaf hafði hann treyst rnest á sjálfan sig og fundizt það verða sér notadrýgst. Að vísu liafði honum stund- um orðið það fyrir að ákalla þann svarta, svona við sérstök tækifæri, þegar honum fannst Jrað eiga vel við, t. d. þegar hesthús- kofinn hrundi, — Jrað bölvað hrófatildur. — En guð? Nei, ónei. Reyndar hafði hann lítið um hann hugsað, að minnsta kosti síðan hann var strákpatti, þegar hann var að stagla lærdómskverið undir fermingu. Það hafði ekki heldur reynt á guðstraustið yfirleitt fram að þessu, og liann hafði aldrei lent í svona löguðum erfiðleikum fyrr en nú. Vill- ast og kunna ekki fótum sínum forráð; — uiargan góðan manninn hafði það hent, svo að sízt var þetta einsdæmi, en Jrað orkaði skolli óþægilega á kjarkinn. — Ef hann færi nú að biðja til guðs, hvað var þá guð. Sumir sögðu, að hann væri ekki annað en hið góða i manninum sjálfum, en aðrir aftur á móti að hann væri alvoldug vera í alheimsgeimn- um, réði gerðum manna og hjálpaði þeim, sem væru í nauðum staddir. Björg hélt fram þessu síðara, og sjálfum hafði honum verið sagt þetta í æsku. Þetta gat svo sem vel verið, en engin kynni hafði hann sjálfur af Jreim guði, þótt hann hefði heyrt sögur um ýmis konar kraftaverk — eða hvað Jrað nú var kallað —, sem höfðu átt að gerast fyrir til- verknað hans. Réttast var að leita skjóls við hólinn í bráðina og liugsa málið. Hver vissi, nema hann gæti þá fundið út rétta stefnu heim að Mörk? ísing settist í skegg hans og föt. Klaka- kleprar héngu úr efrivararskegginu niður fyrir munninn, en lítill árangur varð af að reyna að þíða Jrá með höndunum; svo var frostið mikið. Buxurnar voru stokkfreðnar, og skíðaskórnir tóku að fótunum. Þetta var að verða alvarlegt. Hallur leitaði sér skjóls undanveður við hólinn. Þar hafði hvassviðrið feykt saman skafli miklum, sem var brattur og gaf gott hlé. Hann leysti af sér bakpokann, gróf væna holu inn í skaflinn, sem nægði manni til að sitja í, settist á pokann og teygði limina. En sá unaður, að vera þarna í skjóli fyrir veður- ofsanum! Nú fann hann bezt, hve Jrreyttur liann var orðinn. Hann var eins og gagn- tekinn af vellíðan fyrst í stað og hafði varla sinnu á að stinga skíðunum og stafnum á endann niður í skaflinn við holuopið, en samt gerði hann það og settist svo aftur. Þá sótti á hann sælukenndur drungi, svefnmók og dofi. Hann barðist á móti því í lengstu lög, barði saman frosnum vettlingunum á lu'indum sér, Jrangað til hiti færðist í hend- urnar, og svo barði hann þeim á hné sér, Jrangað til honum lilýnaði það á fótunum, að hann fann til liverrar táar undir freðnum skónum og gat hreyft þær. Hann vissi ekki, livað lengi gekk á þessu; hann var ýmist að dotta eða vakna til meðvitundar. Honum fannst sér líða vel, en treysti sér ekki til að rísa á fætur og halda áfram. Loksins sigraði drunginn og svefnmókið; hann gleymdi sér alveg og féll í faðm hvíldarinnar, — örþreytt- ur maður, setztur að í skjóli hvítrar fann- breiðunnar. 2*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.