Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Blaðsíða 27

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Blaðsíða 27
N. Kv. FLÓTTAMENNIRNIR 21 „Bölvaður skottulæknirinn þinn,“ sagði Weiner. „Þegar við komum í land, þá skal ég steinrota þig! “ ,,Hvers vegna ertu nokkuð að bíða þang- að til við komum í land?“ spurði ég rólega. ,,Haltu þér saman! Heyrir þú ekki?“ ,,Svona nú,“ sagði ég þreytulega. „Skip- aðu nú drengnum að drekka vatnssopann sinn.“ ,,Hann drekkur, þegar mér sýnist,“ sagði Weiner. „Þá held ég þú ættir ekki að láta þér sýn- ast neitt,“ sagði Pennington lágt. „Kagginn er horfinn; matarforðinn líka.“ Það hafði sópazt útbyrðis einhvern tíma um nóttina. Ég man að ég sá hvort tveggja áður en myrkrið skall á. Það hlýtur annað hvort að hafa 'hrokkið eða skolazt útbyrðis. Að minnsta kosti var það horfið. Enginn okkar gat fengið vatn að drekka. Við þetta 'lét DuFond alveg yfirbugast. Hanri hélt um kverkarnar og færði sig hægt aftur á þóftuna í skutnum. Hann var nú núklu hræddari en nokkru sinni áður. Allir höfðu horn í síðu hans. Hann gat fundið það. Nú var enginn Verne til að vernda hann. Hann varð að bjargast upp á sínar eigin spýtur og það var ekki eftir hans skapi. Hann var hræddur. Telez sat við stjórn. Snarpur vindur fyllti seglið og ýtti okkur áfram. Við höfðum ekki hugmynd um hvar við vorum. Áttavitinn var mölbrotinn. Við stýrðum eftir sólinni, í vesturátt. Stórseglið var eina seglið, sem eftir var. Weiner var hálf vandræðalegur. Hann var svangur og þyrstur eins og við liinir, og hon- tim var ekkert um það gefið, að stjórna báts- höfn, sem engar vistir hafði. Hann leit var- hárnislega á okkur. „Jæja þá, piltar," sagði hann. „Þetta lag- ast allt saman. Þið skuluð ekki liafa neinar ahyggjur vegna vatnsins. Við náum nú bráð- Hga landi og þá getum við fengið vatn.“ „Þú trúir því ekki sjálfur," sagði Cam- breau. Ég leit á hann. Hann var búinn að snúa sér við í sínu vanasæti í framstafninum og horfði rólega á Weiner. Mér varð litið á Te- lez; varir hans bærðust án þess nokkuð lieyrðist hvað hann segði, og ég sá að hann gerði krossmark á brjóst sér. Weiner reyndi að forðast að líta á Cam- breau. „Þú skalt ekki vera að segja mér, hverju ég trúi. Við fáum vatn. Þú heyrðir, hvað ég sagði.“ „Þú trúir því ekki sjálfur," sagði Cam- breau. „Þú segir það vegna þess, að þú ert hræddur um að við fáum ekkert vatn.“ „Ég er ekkert hræddur um það!" „Jú, það ertu,“ sagði Cam. „Ég er það ekki, fjandinn hafi það, ég er það ekki!“ Cambreau andvarpaði. „Aumingja Weiner," sagði hann blíðlega. „Alltaf að reyna að vera hávær til að þagga niður í sínum eigin ótta. Gera sig breiðan til að hræða alla í návist sinni. Gortandi og o;ortandi af því að það er sárt að vera óhæfur til alls.“ Weiner starði höggdofa á hann. „Já,“ sagði Cambreau. „Það er sárt að vera óhæfur til alls. Þér er það vel ljóst sjálf- um. Svo þú bara gortar, og gerir félaga þína hrædda við þig, og þá halda þeir að þú sért heldur en ekki karl í krapinu; en þú veizt það bara sjálfur, að þú ert það ekki.“ Weiner var orðinn náfölur. „Láttu þetta ekki hrella þig,“ sagðí Cam- breau að lokum. „Við fáurn vatn.“ „Er það? Fáum við vatn?“ Það hrökklaðist upp úr DuFond áður en hann gætti að sér, og þegar hann heyrði rödd sína, lirökk hann í kút og greip fyrir munninn á sér. Hann var hræddur um að hann fengi ofanígjöf. „Hvernig getur þú vitað það?“ spurði Weiner allt í einu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.