Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Side 33

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Side 33
N. Kv. FLÓTTAMEN NIRNIR 27 „Hvernig vissuð þér það?“ „Mér l laug það bara í 'hug, af því sem þér sögðuð.“ „Eg á við það — hvernig vissuð þér að nokkrir sakamenn hefðu sloppið úr nýlend- unum?“ „Nú, úr dagblöðunum," sagði hann. „Eg var að lesa um það í blöðunum. Það var heilmikið um það, nö'fnin og allt! Þið voruð tlu, það veit hamingjan, að það þarf áræði td að brjótast burt úr þeirn stað. Ég óska yður til hamingju.“ „Þakka yður fyrir,“ sagði ég. „Hvernig fóruð þið að þessu?“ spurði hann. Ég hikaði við. Nú var ekki lengur sett neitt fé til höfuðs okkur. Hann gæti ekki gfastt neitt á því að koma upp urn okkur. „Við bara flýðum," sagði ég. „Tíu!“ sagði hann. „Það hlýtur að hafa þurft töluvert hugrekki til þess arna. Kom- ust þið allir hingað?" „Við vorum ellefu," sagði ég. „Við misst- Urn þrjá menn.“ ’ „Ellefu? Nú, það er undarlegt. Það stóð 1 blaðinu að þið hefðuð verið tíu. Það voru uöfnin á tíu. Ekki ellefu." „Við vorum ellefu.“ „Ellefu í litlum báti!“ Hann hristi höfuð- „Mér þykir vænt um, að ég var ekki með ykkur. Hvað voruð þið marga daga á leið- inni?“ „Fimm,“ svaraði ég. „Við lentum í óveðri 1 gær. Við misstum matarforðann og vatnið °g einn mann. Hafið þér nokkurn tíma verið úti á hafi í roki?“ Hann brosti. „Ég held það væri ekki gott fyrir gigtar- skömmina í mér.“ »>Það er stórfengleg sjón,“ sagði ég. „Menn gera sér ekki grein fyrir því, hvað naaðurinn er í raun og veru lítilfjörlegur, fyrr en þeir hafa verið úti á hafi í roki.“ Hann sagði: „Ég held að ég vilji heldur Veta lítilfjörlegur hérna á þurru landi. Hngsa sér það, ég skil bara ekki hvernig þetta gat lánazt svona vel fyrir ykkur. Að réttu lagi ættuð þið allir að vera drukknaðir .... Þarna. Þar er þetta búið. Hvernig líður yður nú?“ Ég andvarpaði. „Mér líðut þúsund sinnum betur!“ „Jæja — það er líka kominn heldur meiri mannsbragur á yður.“ Hann athugaði mig gaumgæfilega og brosti svo aftur. „Mér líst ekki svo illa á yður. Ég er viss um að yður mundi þykja gott að komast í bað.“ „Það mundi mór sannarlega þykja gott. Það er vel boðið.“ „Ég hef baðker hérna inni í bakherberg- inu. Ef þér viljið nota það —“ „Það er ákaflega vingjarnlegt af yður. Ég er yður þakklátur fyrir það. En ég vildi lielzt geta náð í Iirein föt handa mér líka. Ef ég -“ „Svona nú,“ greip hann fram í fyrir mér. „Þér skuluð ekkert hugsa um það. Farið þér bara þarna inn fyrir og baðið yður. Ég skal skreppa og ná í föt handa yður. Hafið þér nokkra peninga?" „Já, en þeir eru í franskri mynt.“ „Það kemur í sama stað niður; ég skal útvega yður fötin og leggja út fyrir þau, og svo getið þér borgað mér á eftir. Við skulum nú sjá. . . . Hvað viljið þér fá?“ „Það væri ágætt ef þér gætnð náð í hvítar buxur,“ sagði ég. „Og ódýran jakka. Og skyrtu. Ég skal aldrei gleyma jressu. Þér er- uð ákaflega vingjarnlegur. Þakka yður kær- lega fyrir.“ „Uss!“ rumdi í honuni. „Minnizt þér ekki á það. Ég kem undir eins aftnr. Þér getið sjálfur fundið baðkerið í bakherberginu. Það er líka sápa þar. Ég verð ekki lerigi. . . “ Þegar hann kom aftur, var ég að skola af mér sápuna. Hann kom með hvítan jakka úr strigaefni, livítar buxur, livíta skyrtu, og 4*

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.