Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Síða 37

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Síða 37
N. Kv. þegar við erum komnir, þangað sem við Ætlum hver fyrir sig.“ „Það er rétt. Þér hafið lijálpað anér vel °g greiðlega. Þakka yður kærlega fyrir. Mér þætti gaman að sjá hina líka. Vitið þér noikkuð hvar þeir eru?“ ».Nei,“ sagði ég. ,,En ef þér kornið hingað í fyrramálið getið þér 'hitt þá.“ „Jæja,“ sagði hann. Hann gekk þangað. sem báturinn var bundinn og stóð og starði á hann. »,Þessi bátur er rnesti gallagripur. Eg skil ekkert í iþví að ykkur skyldi heppnast þetta. Þér sögðuð, að þið hefðuð fengið storm á leiðinni...... Fjandinn liafi það, ef ég botna nokkuð í því, hvernig þið fóruð að komast hingað. Ætlið þið að leggja aftur af stað á þessu sama trogi?“ „Við höfum engan annan bát,“ sagði ég. „Þið eigið þá á hættu að allt hitt sé unn- íð fyrir gíg,“ sagði hann. ,,Ef báturinn sykki nú á leiðinni, einmitt þegar þið eruð rétt orðnir frjálsir menn aftur?“ ,,Við getum ekki gert neitt annað,“ sagði eg- „Við getum ekki fengið annan bát.“ „Eg skal segja yður dálítið,“ sagði hann. „Það er heill hópur af Bandaríkjamönnum Þérna í borginni. Þeir vinna hérna. Þeir ei'u allra beztu náungar og þeir hafa verið að lesa um flóttann og tala urn hvað mikið hugrekki þyrfti til þess að leggja í þetta. Eg ætla að vita, hvort þeir geta ekki gert neitt.“ „Það er mjög vingjarnlegt af yður,“ sagði eg- „Þakka yður fyrir.“ „Eg ætla líka að senda fréttastofunni sÞeyti í kvöld. Það getur verið að þeir komi með einhverja góða uppástungu." „Þakka yður fyrir.“ „Jæja,“ sagði hann. „Ég ætla þá að láta þetta gott heita í kvöld. Þakka yður fyrir Upplýsingarnar, LaSalle. Við sjáumst í fyrra- málið.“ „Já,“ sagði ég. „Við sjáumst hérna.“ 31 III. Það var orðið dimmt, stjörnurnar tindr- uðu á himninum og uppi í borginni lýstu rafmagnsljósin. Ég sat lengi á bryggjunni og horfði tit á sjóinn. Ég beið og beið, en eng- inn af hinum lét sjá sig og ég var farinn að verða órólegur. Eftir langa mæðu, kom maður gang- andi eftir götunni, sem lá niður að höfn- inni. Hann staðnæmdist, þegar hann kom að bryggjunni og fór að ihorfa á bátinn. Svo kinkaði hann kolli, eins og hann væri sann- færður uin eitthvað, gekk svo fram á bryggj- una og sá mig sitja á bryggjustaurnum. Hann var í einkennisbúningi Trinidad- lögreglunnar. Hann var viðkunnanlegur útlits, með góðleg augu. Hann kinkaði kolli til mín. „Gott kvöld,“ sagði hann. „Gott kvöld,“ svaraði ég. „Þetta er flóttamannabáturinn, er ekki svo? spurði hann. „Ég veit ekkert um það,“ sagði ég gæti- lega. „Ég er að leita að LaSalle lækni,“ sagði hann. „Philip LaSalle lækni.“ „Eg hef aldrei heyrt hans getið,“ sagði ég. „Nú, nú,“ sagði hann. „Það er alveg ó- þarli að fara með ósannindi. Þér hljótið að hafa heyrt hans getið. Þér eruð einn saka- maðurinn, er það ekki?“ „Hvers vegna dettur yður það í hug?“ spurði ég. „Einn þeirra sagði mér, að þið liefðuð gert ráð fyrir því að hittast allir hérna við bátinn í kvöld. Hvers vegna ættuð þér ann- ars að vera staddir hér?“ „Hver sagði yður þetta?“ spurði ég. ,,Maður senr heitir Louis Benet,“ sagði hann. ,,Hvar er hann?“ spurði ég. „Hann er á lögreglustöðinni," sagði hann. „Ég þarf að ná í mann sem heitir LaSalle." „Til hvers?“ „Ef þér eruð hræddir um að verða tekinn FLÓTTAMENNIRNIR

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.