Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Síða 46

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Síða 46
40 „Ég heiti Meredith." „Þetta er Carl Weiner,“ sagði ég. „Hann er einn af bátshöfninni. Meredith er amer- ískur fréttamaður." „Mér kemur það ekkert við,“ sagði Wein- er. „Hvað voruð þér að segja? Eruð þér með rétlu ráði?“ „Ég held það nú,“ fullvissaði Meredith hann. „Það er hárrétt. Þeir keyptu handa ykkur skonnortö. Hún er ek'kert framúr- skarandi glæsileg. Við keyptum liana af sjó- manni hérna. En hún er sjófær og það er í lienni hjálparvél og átta þilrekkjur og svo er í henni eldhús.“ „Hamingjan hjálpi mér!“ Weiner dró andann þungt. „Hún er gott skip,“ sagði Meredith. „Ykkur væri óhætt að sigla á henni kringum jörðina.“ „En „Hún er traust. Hún heitir Albatross. Heyrið þið, hún er meira að segja skráð hjá Lloyd! Hún er þó alltaf skip! Hvernig lízt ykkur á þetta?“ „Okkur?“ spurði ég. „Hvernig í ósköp- unurn fóruð þið að þessu?“ „Ó, það —“ „Hún hlýtur að hafa kostað offjár!" „Nei, síður en svo. Við fengum hana fyrir gjafverð. Maðurinn ætlaði hvort sem er að •fá sér stærra skip, og hann var alveg eins ákafur að losna við hana ,og við að kaupa hana. Við töldum upp svo marga galla. á henni, að seinast var liann farinn að trúa því sjálfur.“ „En 38-feta skonnortu!“ hrópaði ég. „Þið getið kornist á henni hvert sem þið viljið,“ sagði hann. „Drottinn minn dýri! “ hrópaði Weiner. „Heyrðir þú það, Jesús? Heyrðir þú hvað þessi maður sagði?“ „Já,“ svaraði Telez. Hann stóð niðri í bátnum og svörtu augun hans ljómuðu af ánægju. „Hvar er hún?“ spurði Weiner. „Hvar í N. Kv. fjandanum er þetta skemmtiferðaskip? Lof- ið þér mér að sjá hana, herra minn!“ „Hún liggur hérna við hafnarbakkann, svo sem hálfa rnílu vegar héðan,“ sagði Meredith. „Við verðurn að birgja okkur að matvæl- um,“ sagði ég. „Hvert fóru þeir hinir? Við verðum að koma matvælum og vatni um borð. Og við þyrftum að fara að komast af stað. Því fyr, því betra. Við getum ekki átt ]rað á hættu, að landstjórinn s'kipti um skoðun.“ „Drottinn minn dýri,“ sagði Weiner. „Ég á bágt með að trúa þessu!“ Meredith brosti og hristi höfuðið. „Það er nú samt satt. Og þið þurfið ekki að hugsa neitt um matvæli. Þau eru komin um borð. Við erum búnir að sjá um það allt sarnan. Við fengum matvælin miklu ódýrari, en þið hefðuð getað fengið þau. Og vatnsgeymirinn er stútfullur. Þið hafið mánaðar birgðir, LaSalle. Þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af nokkrum sköpuðum hlut.“ „Heyrið þér,“ sagði Weiner tortryggnis- lega, „hvað hafið þér upp úr þessu?“ „Ég?“ sagði Meredith undrandi. „Ekki neitt.“ „Hvers vegna eruð þér þá að þessu?“ spurði Weiner. „Til þess að hjálpa ykkur, það er allt og sunrt. Til þess að gefa ykkur tækifæri til að komast ferða ykkar heilir á húfi. Það yrðu víst ekki miklir möguleikar til þess á bátn- um þeirn arna.“ „Eigið þér við það, að þér séuð að þessu aðeins til þess að hjálpa okkur?“ spurði Weiner, a'lveg steinhissa. „Og þér fáið ekk- ert fyrir það?“ „Nei, auðvitað ekki,“ svaraði Meredith. „Þér munduð gera það sarna fyrir mig.“ Weiner hristi höfuðið og efasemdin skein út úr honum. „Auðvitað munduð þér gera það, ef þér ættuð þess kost.“ FLOTTAMENNIRNIR

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.