Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Qupperneq 49

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Qupperneq 49
N. Kv. FLÓTTAMENNIRNIR 43 Ég kenndi í brjóst um Flaubert. Þetta var aÉt of þungbært fyrir hann. Harmatölur hans og grátkviðurnar heyrðust greinilega gegnum hvininn í óveðrinu og marrið í skipsviðunum. : Cambreau steinsvaf hvað sem á gekk. Óveðrið stóð í sex klukkustundir. Það var komið kvöld, þegar storminn fór að lægja. Þegar skipið var ihætt að höggva og það fór að verða hættulaust að ganga um, sagði eg við Pennington: „Hitaðu kaffi og vertu nú einu sinni fljótur. Weiner er búinn að Vera þarna uppi allan þennan tíma. Hon- uni veitir víst ekki af því.“ ! ,,Það skal ég gera,“ sagði Pennington og flýtti sér inn í eldhúsið. Ég setti vélina í hálfan gang, opnaði svo lúkugatið og fór upp á þilfarið. 'Hellirigningin og náttmyrkrið gerðu allt svo svart, að ég sá ekki nokkurn skapaðan hlut, ekki einu sinni hvítfreyðandi öldu- kambana. Ég þreifaði mig áfram í myrkr- «u, þangað til að ég var kominn að stýrinu. Ég þreifaði á stýrishjólinu, en gat ekki fuhd- hendurnar á Weiner. Svo þreifaði ég á kaðlinum. Hann hafði bundið stýrishjólið fest, svo að við héldum stefnunni. Ég varð hræddur og for að fálma af handahófi í kringum stýrishjólið. Sjórinn skall yfir skipið. Fyrst fann ég hægri höndina á honum. Hún var ísköld. Hann lá kaldur og stirður a bakinu, fyrir aftan stýrishjólið. Ég fór aÚ þreifa fyrir imér eftir kaðlinum sem hann hafði bundið sig fastan með, og fann hann, en ég gat ekki .leyst hann, því að sjórinn hafði bleytt hnútana og þegar stríkkaði á þeim urðu þeir ennþá harðari. Eg skildi hann eftir, hljóp í snatri niður í Éáetu og fékk hníf hjá Pennington. 1 Hann varð skelkaður þegar hann sá fram- ún á mie. ,,Hvað hefir komið fyrir?“ spurði hann. „Weiner,“ stundi ég upp. ,,Ég held að Éann sé dáinn.“ Ég fór aftur upp og skar hann lausan. Ég átti í miklu stríði með. hann svona mátt- lausan, en með því að styðja mig við stýrið, tókst mér loksins að koma honum upp á öxlina á mér. Ég skjögraði með Weiner að lúkugatinu og renndi mér svo með hann niður stigann. Enginn hjálpaði mér. Penn- ington bauðst til þess, en hann gat ekki far- ið frá eldinum rneðan skipið ekki var stöð- ugra. Ég fór með Weiner frarn í. Telez, DuFond, Benet og Flaubert gláptu bara á mig. Þeim datt ekki í hug að fara fram úr til þess að hjálpa mér. Þeir gláptu bara. Cambreau var ennþá sofandi. Ég lagði Weiner upp í þilrekkjuna hans og klæddi hann úr rennblautum fötunum. Hann var isíkaldur. Augun voru hálfopin og starandi. Hann var eins og liðið lík. Ég þreifaði á slagæðinni en gat aldrei fundið að hún slægi. En hann andaði ennþá, það sýndi spegillinn sem ég bar upp að vitum hans. Eg vissi ekki hvort það hefði farið sjór ofan í lungun á honum, eða hvort liann var að deyja af of mikilli áreynslu. Hann lá alveg hreyfingarlaus. Pennington kom með kaff- ið. Ég hellti svolitlu í könnu og ætlaði að reyna að hella því ofan í Weiner, en hætti svo við það af því að hann var alveg meðvit- undarlaus. Hann hefði getað kafnað af því. Ég breiddi ofan á hann allar þær ábreiður sem ég gat fundið, til jress að honum hitn- aði. Svo settist ég við hliðina á honurn og beið eftir því að einhver breyting yrði, en liann hreyfði sig ekki. Pennington kom og settist hjá mér. „Ég er hræddur við þetta, læknir,“ sagði lrann. „Það lítur út fyrir að hann sé dá- inn.“ „Hann er ekki dáinn,“ sagði ég. „Hann andar.“ En það hafði reyndar litla þýðingu, hvort hann andaði eða ekki. Hann var eins og lið- ið lík. 6*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.