Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Side 50

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Side 50
44 FLÓTTAMENNIRNIR N. Kv. IX. Við létum stýrishjólið vera eins og það var og ég fór og stöðvaði vélina. Okkur rak fyrir vindinum. Það var farið að kyrra á sjóinn og skonnortan ruggaði hægt og.ró- lega. Það Iiélt áfram að rigna. Eftir nokkra stund, skildi ég Pennington eftir hjá Weiner og sagði Telez að koma með mér. Við fórum upp á þilfar í rign- ingunni og drógum upp framseglið. Eg sá að fókkan var fokin veg allrar veraldar. Vindinn hafði lægt, en hann var samt nægi- lega sterkur til þess að koma hreyfingu á skonnortuna, þegar við drógum upp frarn- seglið. Ég vildi ekki láta okkur reka, því að ég var hræddur um að við myndum þá al- veg missa stefnuna. Þegar við vorum búnir að eiga við seglið og taka stefnuna eftir átta- vitanum, fór ég aftur niður undir þiljur og skildi Telez eftir við stýrið. Ég lokaði lúku- gatinu á eftir mér, svo að það rigndi ekki inn á okkur. Það var húðarrigning og ég var gegndrepa. Það var heitt niðri í káet- unni, allt of heitt. Ég opnaði kýrauga og-fór svo þangað sem Weiner lá. Flaubert hraut. Hann hafði grátið sig í svefn. DuFond var einnig sofandi. Það var enga breytingu að sjá á Weiner, nema nú lá hann með augun aftur. Mér þótti vænt um það. Mér lell illa að horfa á svona starandi augu. Ég þreifaði á slag- æðinni, en ég gat ennþá ek'ki fundið hana, en þegar ég reyndi með speglinum, sá ég að Iiann andaði ennþá. Hann var ískaldur og varirnar l)lóðlausar. Pennington geispaði og var að revna að halda sér vakandi. en ég sá að hann var dauðþreyttur, svo að ég sagði við hann: „Ég skal sitja hjá honum. Farðu og- leggðu þig-“ „Mér leiðist að skilja þig einan eftir,“ sagði Pennington. „Það gerir ekkert til,“ svaraði ég. „Ég skal vekja þig, ef hann raknar við. Þú dett- ur út af, ef þti heldur áfram að sitja hérna.“ Hann brosti. „Það má svo sem búast við því,“ sagði hann. „Jæja, ég ætla þá að leggja mig. Vektu mig, ef þú vilt hvíla þig.“ „Ég skal gera það,“ sagði ég. Hann stóð á fætur og ætlaði að fara, en sneri svo við aftur. „Langar þig ekki í kaffisopa? Það mundi hressa þig.“ Ég kinkaði kolli. „Þakka þér fyrir.“ Hann fór inn í eldhúsið og kom fljótlega aftur með kaffið. Mér leið nriklu betur eftir að ég var búinn að drekka það. Eftir að Pennington var lagstur fyrir, var allt mjög hljótt. Það heyrðust reyndar ýms hljóð, öldugjálfrið, marrið í möstrunum, ýlið í ljóskerinu þegar það sveiflaðist fram og aftur. Hroturnar í Flaubert, hvískrið í regndropunum á sjónum, blístrið í vind- inurn þegar hann þaut fram hjá opnu kýr- auganu. Ég var orðinn öllum þessum hljóð- um svo vanur, að ég tók varla eftir þeim. Kaffið hafði eftir allt saman ekki tilætl- uð álnif á mig. Augnalokin á mér fóru að síga. Ég barðist við svefninn, en það var vonlaust. Ég man eftir því að ég leit á Weiner. Sveiflandi ljóskerið varp gulleit- um bjarrna frarnan í hann. Hann var ná- bleikur, eins og liðið lík. Svo seig á mig mók. Það virðist svo sem ég hafi verið búinn að sofa góða stund þarna, sitjandi við hlið- ina á Weiner, þegar mig dreymdi, að ég var kominn upp á þilfar, stóð þar við stjórn og rýndi út í náttmyrkrið. Sjór var úfinn og skonnortan lét illa að stjórn. Ég var alltaf að glima við stýrishjólið og var orðinn þreyttur. Ég var aleinn; félagar mínir voru hvergi sýnilegir. Smám saman breyttist rign- ingin ií niðaþoku. Mér fannst ég aldrei hafa verið svona einmana. Þá heyrði ég allt í einu gjálla í þokulúðri einhvers staðar úti í þokunni og mér rann kalt vatn milli skinns og hörunds. í einhverju ofboði fór

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.