Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Síða 54

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Síða 54
48 BÓKMENNTIR Þótt kvæðin í Snót sén að vísu misjöfn að gæðum, þá eru þarna imörg ágætustu kvæði, er ort hafa verið á íslenzku, og hún er og’ verður alltaf merkilegt sýnisliorn íslenzkrar Ijóðagerðar. Á sínum tíma hefir hún vafa- laust unnið merkilegt hlutverk, með því að gera þessi Ijóð almenningseign. Og vonandi kunna menn enn að meta hana að verðleik- um. , Bókin er prýdd f jölda mynda og hin fríð- asta í öllum frágangi. Jónas Jónasson frá Hrafnagili: íslenzkir þjóðhættir. 2. útg. Jón- as og Halldór Rafnar gáfu út. — Reykjavík 1945. Fáum bókum um Jrjóðleg efni hefir verið jafnvel tekið og Þjóðháttum séra Jónasar, er Jreir komu út hið fyrra sinn, árið 1934. Þótt Jreir væru ]rá dýr bók og víða lítið um peninga, seldust þeir upp á örskömmum tíma. Þeir urðu þá þegar sígild bók í hug- um almennings, enda mun svo verða meðan nokkur maður sinnir íslenzkri menningar- sögu. Enn sem komið er, eru þeir eina heild- arritið, sem til er um íslenzka Jrjóðhætti, og Jreir gefa furðutraust og fjölþætt yfirlit um það efni. Við lestur bókarinnar opnast les- andanum sýn inn í liðnar aldir, hversu fólk- ið lifði og starfaði, bjó og klæddist, hann kynnist Jdví í sorg og gleði, í einveru og á mannamótum. Vinsældir bókarinnar hafa Jdví eigi orðið meiri en efni standa til. Hin nýja útgáfa Þjóðháttanna, sem son- arsynir höfundarins hafa kostað, en ísafold- arprentsmiðja annast, er í engu breytt frá hinni fyrri, nerna niður er felldur formáli Einars Ól. Sveinssonar, en Jónas Jónsson al- Jiingismaður skrifar í hans stað góða og hlý- lega grein um höfundinn. Ekki mun þurfa að efa, að þessi nýja út- N. Kv. gáfa verði almenningi kærkomin líkt og hin eldri. i . k.' C.; Þrjár bækur um þjóðleg fræði. Rétt urn áramótin síðustu sendi ísafold- arprentsmiðja frá sér þrjár bækur um þjóð- leg fræði: Rauðskinnu sr. Jóns Thoraren- sen VI. h. Sagnaþœtti og þjóðsögur Guðna Jónssonar VI. h. og Frá yzlu nesjum Gils Guðmundssonar, 3. h. Eru Jretta allt loka- hefti binda. Fylgir þeim öllum nafnaskrá. En skemmtilegra hefði óg talið, að Jjeim hefði einnig fylgt titilblað fyrir bindin og heildarefnisyfirlit. Væri slíkt bæði fallegra og handhægara. Um efni Jressara hefta allra er lítið að segja, Jrar kennir ýmissa grasa, margra góðra, en annarra, sem meira létt- meti mega teljast. Fátt er eiginlegra Jrjóð- sagna, heldur er meginefnið þættir að mestu sannsögulegir. í Rauðskinnu er ein •lengsta sagan um Villu eftirleitarmanna á Eyvindarstaðaheiði eftir Pálma Hannesson. Glögg mynd þeirra baráttu, sent íslendingar hafa stöðugt háð við náttúru landsins. Vel rituð og skemmtileg er og frásögn sr. Jóns um Maríufiskinn. Guðni birtir sagriir af Ófeigi á Fjalli, ásamt mörgu fleiru, en lengstu sögurnar í safni Gils eru fyrri hluti af sögu Vatnsfjarðarstaðar eftir útg. og saga Skúlamálanna á ísafirði eftir Kristján Jóns- son frá Garðsstöðum. Hygg ég mörgum þykí góður fengur í þeirri frásögn, Jrví að alhnjög eru mál þau tekin að fyrriast í hugum manna. En mein mikið er, að höf. skuli ekki lvafa getað náð til réttarskjalanna sjálfra í málum þeim, því að Jrau hljóta þó að vera traustasta heimildin um allan rekst- ur málanna. Ýmsar fleiri bækur eru nýkomnar frá ísa- foldarprentsmiðju, sem síðar verður getið. Steindór Steindórsson frá Hlöðum.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.