Nýjar kvöldvökur - 15.05.1928, Side 4

Nýjar kvöldvökur - 15.05.1928, Side 4
34 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Hannes Hafstein einn tók hærra próf það ár. — Árið eftir hvíldi hann sig við nám, vegna heilsunnar, og var þá heimiliskennari á Reynistað í Skagafirði. Eftir það gekk hann á prestaskólann og útskrifaðist þaðan eftir tveggja ára nám 5. sept. 1883 með fyrstu einkunn. — 10. sept. 1883 var hon- um veitt Landsprestakall í Rangárvallasýslu og vígðist hann 16. sept. s. á. — 12. maí 1884 kvæntist hann Pórunni Stefánsdóttur bónda á Hlöðutúni í Borgarfirði (fædd 24. febrúar 1858) og bjuggu þau hjónin á Fells- múla á meðan þau dvöldu þar eystra; var þá alt á fallanda fæti þar eystra um sveilir vegna sandfoks, svo að síra Jónas sótti um Grundarþing í Eyjafirði og voru veitt þau 6. okt. 1884. Fluttu þau norður í Eyjafjörð vorið 1885 og áttu heima á Hrafnagili, Stokka- hlöðum og Espihóli, þangað til þau fluttu aftur að Hrafnagili vorið 1888 og bjuggu þar síðan, þangað til þau fluttu til Akur- eyrar 1908. — Frá 1908—1910 var síra Jón- as settur 2. kennari við gagnfræðaskólann á Akureyri, en þjónaði jafnanframt prestakalli sínu. Var honum veitt 3. kennaraembætti við sama skóla 22. mars 1910 og fjekk þá um leið lausn frá prestskap. — Hann var prófastur í Eyjafjarðarprófastsdæmi 1897— 1908. Síra Jónas var góður klerkur, elskaður og virtur af öllum sóknarbörnum sínum. Samt liefir hann ekki orðið nafnkunnastur fyrir preststörf, heldur sem rithöfundur og fræðimaður. Hann var sílesandi ogsískrifandi. Líklega hefir enginn samtíðarmanna hans verið eins fjöllesinn í íslenskum fræðum sem hann, enda sagði síra Matthías Joch- umsson um hann, að hann ætti að heita hinn fróði. Það er heldur ekki ólíklegt, að Ari fróði, Styrmir fróði og fleiri prestar fyrri tíma, sem kallaðir voru heiðursnafninu »hinn fróði«, hafi verið líkir síra Jónasi. Eitt af því fyrsta, sem birtist á prenli eft- ir síra Jónas, var Yfirlit yfir bókmentir Is- lendinga á 19. öld, sem kom út í tímariti Bókmenlafjelagsins áiið 1881. Var hann þá nýorðinn stúdent, og sýnir ritgerð þessi, hvað hann hefir þá verið orðinn óvenjulega fjöllesinn. Meðan hann var prestur syðra samdi hann flestar sögur þær, sem eftir hann birtust í mið Iðunni, og munu öll söguefnin vera tekin af Suðurlandi. Sögur þær, sem hann skrifaði í Iðunni, voru: Gletni lífsins (1885), Brot úr œfisögu (1886), Björn í Geröum (1886), Ofrið (1887), og Frelsisherinn (1888). Vöktu allar þessar sögur eftirtekt og voru mikið lesnar. Margar þýddar fræði- greinar birtust einnig eftir hann í Iðunni. Eftir að hann kom norður til Eyjafjarðar, samdi hann margar sögur. Helstar þeirra eru: Randíður á Hvassefelli, sem kom út sjerstök árið 1892, Magnúsar-þátturog Guð- rúnar, Kálfagerðisbrœður og Hungurvofan, sem komu út í sögusafni Þjóðólfs, Eiður, sem kom út í Eimreiðinni 1897, Úr blöðum Jðns halta, sem kom út í Nýjum Kvöld- vökum 1911, og Hofstaðabrœður, sem kom út sjerstök 1924, Sigurður Kristjánsson ætlaði að gefa út skáldrit síra Jónasar í safni, er hjet Ljós og skuggar, en aldrei kom nema I. bindið. Fjórar af sögum síra Jónasar hafa verið þýddar á dönsku og Eiðurinn þrisvar sinnum á þýsku. Æfintýri samdi hann mörg á síðari árum, en fátt hefir birst af þeim á prenti. Eftir að hann kom til Akureyrar safnaði hann kynstrum af þjóðsögum og um þjóð- siði, sem nú er geymt í Landsbókasafninu. Hann bjó undir prentun þjóðsögur Odds Björnssonar, enda hafði hann skrifað ekki all-fáar sögur í því safni. Meðan hann var á Hrafnagili samdi hann dönsku orðabókina, reikningsbókina og staf- rófskverið, en tslenshu málfrœðina eftir að hann kom til Akureyrar. Aliar þessar bæk- ur hafa verið mikið notaðar við kenslu og þótt góðar, og feikna elju hefir þurft til að

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.