Nýjar kvöldvökur - 15.05.1928, Qupperneq 10

Nýjar kvöldvökur - 15.05.1928, Qupperneq 10
40 NYJAR KVÖLDVÖKUR buskan skyldi kalla Drómió eiginmann sinn, að hann yfirgaf húsið jafnskjótt og hann sá sjer nokkurt færi á að fara í burtu, því að þótt honurn fjelli Lúciana, systir hús- móðurinnar, vel í geð, þá geðjaðist honum mjög illa að hinni bráðlyndu Adriönu. Ekki var Drómió heldur ánægður með eldabusk- una. Peir voru nú í sjöunda himni að vera slopnir í burtu frá þessum nýju konum sínum. Rjett í því, er Antipólus frá Sýrakúsa yíirgaf hús bróður síns, mætti hann gull- smið, sem tók hann í misgripum, eins og Adriana, fyrir Antipólus frá Efasus, og fjekk honum gullkeðju, sem hann sagði Antipól- us eiga. Pegar hann kvað þessa keðju sjer óviðkomandi, svaraði gullsmiðurinn því, að hann hefði þó smíðað hana eftir hans eigin beiðni og með það fór hann og skildi keðjuna eftir í höndum Antipólusar, sem skipaði Drómió að koma dóti þeirra á skipsfjöl samstundis, því að hann kærði sig ekki um að dvelja þar, sem hann gæti ekki þverfótað fyrir hinum kynlegustu æfintýrum eða töfrum. Lítilli stundu eftir að gullsmiðurinn hafði fengið röngum Antipólusi keðjuna, var hann tekinn fastur fyrir skuld, sem honum bæri að greiða þegar í stað. En nú vildi svo til, að hinn gifti Antipólus, sem gullsmiður- inn áleit sig hafa afhent keðjuna, bar að rjett í þessu. Pegar gullsmiðurinn sá Anti- pólus, fór hann fram á, að hann borgaði nú gullkeðjuna, sem hann hefði afhent hon- um fyrir augnabliki. Var verð hennar að heita mátti það sama og upphæðin, sem hann var tekinn fastur fyrir. Antipólus neitaði að hafa tekið á móti keðjunni, en gullsmiðurinn fullyrti, að hann hefði tekið á móti henni fyrir örfáum mínútum úr sín- um eigin greipum. Um þetta þrættu þeir langa lengi og báðir hjeldu þeir, að þeir hefðu rjett fyrir sjer. Antipólus vissi, að gullsmiðurinn afhenti honum aldrei festina, og svo Iíkir voru þessir tveir bræður, að gullsmiðurinn var jafnviss í sinni sök, að hann hefði afhent honum keðjuna. Að síðustu fór Iögregluþjónn með gull- smiðinn í svartholið, þar sem hann gat eigi greitt skuld sína. En um Ieið krafðist gullsmiðurinn þess, að Antipólus væri tek- inn fastur, þar sem hann neitaði að borga gullfestina. Þannig var þá að lokum farið með þá báða, Antipólus og gullsmiðinn, beint í betrunarhúsið. Á leiðinni í fanga- húsið mætti Antipólus þræl bróður síns, Drómió frá Sýrakúsa, en þar sem hann tók hann í misgripum fyrir sinn eigin þræl, skipaði hann honum að fara heim til Adri- önu konu sinnar og segja henni að senda sjer peningaupphæð þá, sem hann var tek- inn fastur fyrir. Drómió varð mjög hissa, er hann heyrði, að húsbóndi sinn skyldi senda sig aftur til hins kynlega húss, þar sem þeir hefðu snætt miðdegisverð, og hann hafði neitt allra bragða til þess að sleppa sem fyrst í burtu frá. En hann þorði engu að svara, þótt hann hefði komið í þeim er- indagerðum, að Iáta húsbónda sinn vita, að skipið væri ferðbúið, því að hann sá, að Antipólus var ekki í þeim ham, að fært væri að malda í móinn. Drómió hjelt því af stað til húss Adriönu og bölvaði með sjálfum sjer yfir því, að þurfa að fara þang- að, *þar sem ísabella kveður mig bónda sinn,« mælti hann við sjálfan sig. »En jeg verð að fara, því að þrælar verða að hlýða húsbændum sínum.« Adriana fjekk Drómió peningana, en í bakaleiðinni rakst hann á Antipólus frá Sýrakúsa, sem enn var fullur undrunar yfir hinum óvæntu æfintýrum, er hann stöðugt varð fyrir. Par eð bróðir hans var vel þektur í Efasus, mætti hann tæplega svo manni á strætunum, að honum væri ekki heilsað sem gömlum kunningja. Sumir fóru fram á að borga honum pen- inga, sem þeir sögðust skulda honum. Aðr- ir buðu honum heim til sín og enn aðrir þökkuðu honum eina eða aðra hjálp. Allir

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.