Nýjar kvöldvökur - 15.05.1928, Qupperneq 23

Nýjar kvöldvökur - 15.05.1928, Qupperneq 23
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 53 við hann og elskendurnir urðu einir sjer. Skömmu síðar hrópaði greifinnan: »Heyrðu ! Hvað segir þú u.m það, Zia mia? Yfirvöldin vilja ekki Ieyfa veslings Paolo að setja tiyggingu, svo að hann er enn í haldi.c »VesIingurinn!« svaraði Donna Teresa. »Pað er La Mafia!« »Ef til vill er honum fyrir bestu, að vera þar sem hann er,« sagði Martel. »Að minsta kosti er hann þar óhultur fyrst um sinn. Hann er það, sem þið ekki vitið: Kona Gallis er systir Gian Narcone!« »Útlagans?« »Pá er sennilegt, að hún drepi PaoIo,« sagði greifinna Margherita rólega og bætti svo hugsandi við: »En hvað það hlýtur að vera örðugt, að gera það sem rjett er. T. d. Paolo. Hann drepur í mesta grand- leysi fyrirlitlegan þjóf og þó heldur lögregl- an honum í varðhaldi. Og þó held jeg, að ef jeg væri kona þessa Galli, að jeg mundi sjálf heimta blóð hans. Hún er þó ein' ungis eiginkona.« 1 »Tekur þú málstað hennar?« hrópað Martel undrandi. »Að vissu leyti. Jeg er ekki hrygg vegna hins drepna, en eiginkonan hefir sín rjett- indi. Auðvitað ofsækir hún Paolo.« »Trúið þjer á blóðhefnd?« spurði Nor- vin undrandi. »Hver er sá, sem ekki gerir það? Krefjið þjer eigi óvini yðar reikningsskapar í Amer- íku ?« spurði Margherita. »Jú, að vísu, en ekki með nándar nærri eins mikilli heift sem hjer,« svaraði Blake. »Vanalega þurfum við ekki að myrða menn til þess að vernda eigur vorar, og konur ganga þar eigi um og hóta hefndum, er menn þeirra meiðast. Lögreglan sjer um alt slíkt.« »Ágætt land! Pað hlýtur að vera frið- samt fyrir gamalt fólk að vera þar!« hróp- aði frænkan. »Við eigum einnig nokkra fræga glæpa- menn, eins og þið ykkar Belisario Cardi — —.« »Cardi er einungis nafn,« sagði unga stúlkan. »Hann er ekki til.« Blake tók eftir því, að Martel leit á hann viðvörunaraugum, svo að hann sagði ekkert og samræðan snerist að öðru. Greifinn, sem var mjög fljótlyndur mað- ur, gat eigi lengi setið kyr, en stóð á fætur og mælti: »Jeg verð að fara niður í þorpið. Bakar- inn, sláfrarínn, allir eru í annríki vegna há- tíðahaldanna og jeg verð að panta flugelda frá Messina. Norvin getur verið hjer á með- an við Ricardo förum í bæinn. Addio!« Hann kysti á hendi Margheritu, hneigði sig fyrir frænkunni og hljóp niður tröpp- urnar. »Á að verða hjer f e s t a ? « spurði Blake. »Já. Það verður mikið um dýrðir. Martel vill hafa það svo.« Margherita stóð á fætur og ungi maðurinn elti hana. »Sjáið til, það á að dansa hjerna úti á grashjallanum. Þjer hafið aldrei verið við sikileyiska þjóðskemt- un? Þjer hafið aldrei sjeð tarantella? Þá mun yður þykja gaman. Kvöldið fyrir veisl- una kemur fólk hingað frá nálægum sveit- um. Hjer verður hljóðfærasláttur, ieikir og flugeldum skotið. Ó, það verður sannnefnd- ur Celebrazione. Ættingjar mínir frá^Mess- ina koma og biskupinn og margt heldra fólk. — Jeg — jeg er enn^eftirvæntingar- fyllri en Martel. Jeg hefi varla þreyju í mjer að bíða.« Óþreyja ungu stúlkunnar sást glögt í augum hennar. Hún virtist vera langtí burtu, sokkin niður í hugsanir um breytingar þær, sem yrðu á lífi hennar, og Norvin fór að gruna hana um, að hún væri mjög tilfinn- ingarík. Hún var enn fegurri úti í sólskin- inu og um leið og honum datt hótunin í hug, er unnusti hennar hafði fengið, fór hann að velta því fyrir sjer, hvernig hún mundi taka því, ef ógæfuna bæri að höndum.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.