Nýjar kvöldvökur - 15.05.1928, Side 28

Nýjar kvöldvökur - 15.05.1928, Side 28
58 NÝJAR'KVÖLDVÖKUR »Hann sefur úti í hesthúsi. Hann er drukkinn, asninn sá arna,« mælti Rieardo. Ameríkumanninum virtist sem allir þessir Sikileyingar væru nauðalíkir hver öðrum. Þeir voru allir æfintýralegir og honum fanst búningur þeirra minna á grímubúninga, þar sem allir væru klæddir eins og glæpamenn. Sumir höfðu eyrnahringa eins og sjóræn- ingjar, aðrir höfðu vafið sjölum um höfuð sjer til að leynast. Hann sá það glögt, hversu auðvelt það var fyrir fámennan hóp manna, er hafði ilt í huga, að blandast öll- um þessum sæg. En skynsemi hans sagði honum að það væri heimskulegt, að láta sjer detta slíkt í hug. Hann hafði látið æsa sig upp með kerlingaþvaðri. Hálftíma síðar, er hann enn horfði á dans- inn af veggsvölunum, kom Margherifa til hans og honum virtist í fyrstu sem hann fyndi á henni grun um, að eitthvað ilt væri í vændum, en fyrstu orð hennar gerðu hann rólegan. »Kæri vinur, jeg saknaði yðar,« mælti hún »en jeg gat ekki sloppið í burtu fyr en nú « Hún gekk nær honum og mælti: »Er nokk- uð að? Þjer virðist svo hnugginn í kvöld. Jeg veit það ekki, en jeg er hrædd um, að þjer sjeuð ógæfusamur.« Hann svaraði hikandi: »Má vera að svo sje. Jeg — veit ekki.« »Það er vegna stúlkunnar, sem þjer sögð- uð mjer frá um daginn?« »Sennilega. Jeg er mesti kjáni.« »Segið það ekki. Ef til vill er það í síð- asta sinn, sem jeg fæ tækifæri til að vera ein með yður.« »Mjer þykir vænt um,« hrópaði hann með rödd, sem gerði hana hrædda, »mjer þykir vænt um það yðar vegna. Jeg hefi reynt að draga eigi úr gleði yðar, en það hefir kostað mig áreynslu.« »Við konur sjáum slíkt. Martel — sem er mesta barn — grunar ekkert, og þó hefi jeg, sem heíi þekt yður'sVamma’stund, lesið leyndarmál yðar. Það er hamingja vor, sem hryggir yður.« »Nei, nei! Jeg er ekki þannig gerður. Jeg tek þátt í gleði ykkar. Jeg vona að hún haldist sem lengst.« »Mætti jeg fá eina ósk uppfylta, yrði hún sú, að henni þætti einhvern tíma eins vænt um yður eins og mjer um Martel. Og hver veit. Ef til vill verður það. Jeg finn, að það verður þannig.« »Þjer eruð mjög góðar,« tókst honum að segja. Og hann bar hendi hennar upp að vörum sjer og kysti á hana. Skömmu síð- ar fór hún og Savigno kom og geispaði langan. »Dio!« hrópaði hann og gretti sig. »En hvað ættingjar hennar eru leiðinlegir. Jeg áfelli þig ekki, þótt þú færir. Veslings vinur minn! Þú ert píslarvottur, að þurfa að þjást svo fyrir mína sök.« »Mjer hefir þótt mjög gaman, einkum hjerna úti,« mælti Norvin. »Jeg sá þá dansa dans áðan, sem jeg hjelt að væri »faran- tellan«. Þeir sfukku eins og skógarguðir, bændurnir.« »Já, og þeir halda áfram lengi enn. Jeg er hræddur um, að Donna Teresa komist ekki eins snemma í hátfinn og vant er. En sá dýrðardagur! Það er himneskt að gera öðrum glaða stund. Það er ein af seinni uppgötvunum mínum.« »Mundu eftir morgundeginum.« »Trúðu mjer, að jeg hugsa ekki um ann- að. Það er þess vegna, sem við verðum að fara að leggja af stað. Við getum ekki beðið eflir flugeldunum, þótt við vildum. Það er langur vegur til Martinello og við þurfum að fara snemma á fætur í fyrramálið. Þú hefir víst engum mótmælum að hreyfa?« »Þvert á móti. Jeg ætlaði einmitt að nenia þig burt með valdi, nauðugan, viljugan.« »Þá ætla jeg að?'!áta"'iIppolito Sækja hestana.«

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.