Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Page 5

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Page 5
N. Kv. VALGERÐUR 83 Guðlaug skríkti: „Mér er sagt, að það hafi eina sinni verið keisari nokkur með þessu nafni, sem vildi, að öll höfuð á þegnum sínum sætu á einum liálsi, svo að hann gæti höggvið þau af í einu höggi.“ „Þér meinið víst Caligúla, en hvað kem- ur það Skúla við? Ekki er hann illmenni." ' „Nei, mikii ósköp, hann er nú of mikið daúðýfli til þess; en ég veit samt, að hann viidi, að öll kvenhöfuð sætu á sama hálsi, svo að liann gæti kysst þau öll í einu!“ „Hefur hann reynt að kyssa yður?“ spurði Valgerður. „Ó, ekkí, það væri nú líka meiri haninn, sem ekki léti fimmtugar konur í friði. — En þér voruð honum mátuleg!“ „Hver hefur sagt yður, að ég hafi ekki viljað dansa við hann?“ ,,0, ég sá það sjálf, blessaðar verið þér, ég er oft, þegar dansað er, í þrönginni frammi við dyrnar, og það var líka núna.“ Valgerður varð alvarleg á svip og sagði: „Þér ættuð nú alveg að liætta því að upp- n.efna fólk, það hefur oft hlotizt illt af því, en aldrei neitt gott. Og ef þér hafið gaman af að horfa á dans, skuluð þér aðeins gera það, en vera ekki að búa til eitthvað og eitt- Iivað, sem þér eruð ekki vissar um. Ég skil ekki í, að Skúli hafi neitt til þess unnið, að þér hæðist að honum.“ Guðlaug nam staðar með bolla á miðri leið upp að munninum, og undrunin skein út úr andliti hennar: „Er yður þá svona annt um Skúla?" varð henni á að segja. Valgerður sneri sér undan við eitthvað, sem hún var að lagfæra í stofunni, en er hún leit til Guðlaugar aftur, brosti hún og sagði: „jMér er svona annt um yður, að ég ætla að reyna að venja yður af því að uppnefna fólk. \;ið viljum ekki láta tala þannig um okkur, og eigum því ekki að gera öðrum það,“ Guðlaug ieit undan, hálf sneypuleg, en spurði svo allt í einu: „Hvað á ég nú að borga yður?“ og tók um leið léreftsdulu upp úr vasa sínum, en innan í henni hafði hún mismunandi stóra aura. „Ekki neitt að svo stöddu. Þér komið aft- ur til mín að degi liðnum, þá tek ég frá hendinni og vona, að þér þurfið ekki að koma oftar til mín hennar vegna.“ Guðlaug stóð upp og bjóst til ferðar. „Jæja, ég þakka innilega fyrir veitingarn- ar og lækninguna." „Það er ekkert að þakka,‘ ‘sagði Valgerð- ur, „ég býst við, að yður liafi ekki fundizt ég vera mjög vingjarnleg,“ Valgerður brosti til hennar. „Jú. þér eruð ekkert annað en það, sem gott er, og þess vegna — nei, ég ætla nú að þegja, og verið þér blessaðar og sælar.“ Dagarnir liðu liver öðrum líkir að ytra útliti manna á milli, en rnargt gerðist þó á hverju heimili, og spunnust víða þræðir í sögu vora. Skúli og Valgerður sáust alloft, er þau gengu um þorpið. Hann var jafnan kurteis, og oft átti hann samleið með henni. Aldrei minntust þau á dansleikinn góða, og hann gætti þess vel að láta tilfinningar sínar gagnvart henni ekki koma í ljós, og hafði hún því oft gaman af viðræðum hans. Jens- sen heimsótti liana einu sinni, „til þess að fullvissa sig urn, að henni liði vel“. Hún veitti honum kaffi, og að lokum bað hann hana að heimsækja þá feðga eins oft sem hana lysti, þeim væri það ánægja. Valgerður tók lítið undir þetta og lnaðaði ekki þeirri heimsókn. Þær Oddný voru nú orðnar vel kunnug- ar, og furðaði engan á því, enda var Sól- björt oft hjá Valgerði. Hún kom oft til Jó- hanns gamla, og þráði hann mjög komur hennar eins og skemmtilegs vinar, því að hún var jafnan glöð og uppörvandi, þótt henni vöknaði stundum um augu, þegar hann sagði henni frá æsku og bernsku Jó- n*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.