Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Síða 20

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Síða 20
98 OÐRUVÍSI EN AÐRAR, OG ÞÓ. . . . N. Kv. að gera, sagði Einar Lind, hnugginn. — En hvernig sem allt fer, þá lofið því að koma með mér á skíði síðdegis á morgun. — Svo framarlega að ég verði vöknuð um það leyti, þá kem ég. — Kjóllinn er alveg Ijómandi, en hvers vegna í ósköpunum lítur þú út eins og þú ætlaðir að vera við jarðarför, sagði frú Berg- mann, þegar Gréta hafði haft íataskipti um kvöldið. — Ef þú verður alltaf með þennan svip, getur þú ekki búizt við að skemmta þér í kvöld. — Skemmta mér, hreytti Gréta út úr sér. — Mig langar ekkert til að skemmta mér. — Bíddu bara þangað til þú hittir þann rétta, þá muntu skipta um skoðun á þessu efni. — Þann rétta? Gréta varð þess samstundis vör, að hún roðnaði, og sneri sér því skyndi- lega undan, svo að móðir hennar sæi það ekki. Henni varð hugsað til þess, ef að Einar Lind hefði líka verið í þessu samkvæmi, þá hefði hana langað til að vita, hvernig hon- um hefði geðjast að henni í þessum nýja kjól. En um álit þeirra, Gunnars, Áka og Vilhjálms, stóð henni alveg á sama. Þýddi þetta að Einar væri — nei, þetta eru einungis hugarórar, hugsaði Gréta og varð hneyksluð á sjálfri sér. Sá rétti var einungis rómantískt orðátiltæki, sem hentaði ekki nútíma íþróttaæsku. Þegar Gréta kom í anddyrið á húsi Lund- bergshjónanna, hitti hún eina af skólasystr- um sínum, Ingu Viklund að nafni. Hún hafði þegar heilsað fjölskyldunni, en var nú þarna stödd og bar duft á andlit sér, sagði við Grétu dálítið kímileit: — Þú mátt reiða þig á, að Mary er í essinu sínu núna. Henni hefur sem sé tekizt að ná tangarhaldi á nýja verkfræðingnum og liangir nú utan í honum, svo að hann kemst ekki þversfótar fyrir henni. Honum geðjast ef til vill vel að henni. Hún lítur að vísu mjög vel út, og þó að hún stígi ekki í vitið, þá gerir það ef til vill ekki svo mikið til. — Sé það svo, verður hann auðvitað sjálf- ur að sjá fyrir því, sagði Gréta kæruleysis- lega, og fór með vinstúlku sinni inn í her- bergi það, þar sem húsbóðirin tók á móti gestum sínum. — Hvað virðist þér nú, sagði Inga. — Það er ekki hægt að lá Mary. Að segja, að verk- fræðingurinn ungi sé ekki yndislegur, væri sama senr að segja, að reyniber væru súr, eða finnst þér það ekki? Grétu varð litið í þá átt, sem Inga horfði, og hún næstum stirðnaði upp. Ungi maður- inn hávaxni í smokingnum, sem Mary hafði sér \ ið hönd, var enginn annar en Einar Lind. Var þetta maðurinn, sem Inga var að tala um, að Mary héngi utan í? Á sama augabragði kom Mary auga á hana, og gekk hún nú til hennar með Einari Lind. — Ó, hvað það var inndælt, að þú gazt komið, Gréta! Má ég kynna þig fyrir Lind verkfræðingi. — Ég þakka, sagði Einar Lind brosandi, — en ég held, að það sé óþarfi. Við erum gamlir kunningjar. — Þekkir þú Lind verkfræðing? Hvers vegna hefur þú ekki sagt mér það? sagði Mary stórmóðguð. — Ég vissi ekki, að ég ætti að segja sér- hverjum, hverja ég þekki, sagði Gréta. — Mary renndi óhýru auga til hennar, og sagði því næst við Lind verkfræðing, án þess að virða Grétu viðlits: — Ég á fleiri vini hérna, sem mig langar til að þér heilsið. Og að því btinu dró hún hann með sér, án þess að hann gæti sagt nokkurt orð við Grétu. Hún stóð í sömu sporum og horfði á eftir þeim með samanklemmdar varir. Já, einmitt, það var þá Einar Lind, sem var sá útvaldi. Og nú mundi Mary vissulega leggja sig alla fram til að klófesta hann. Nú, jæja, væri hann svo heimskur, að hann yrði ást- fanginn al’ Mary, þá átti hann ekki betra skilið, hugsaði Gréta. Meðan á máltíðinni stóð, var verkfræð-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.