Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Qupperneq 22

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Qupperneq 22
100 ÖÐRUVÍSI EN AÐRAR, OG ÞÓ. . . . N. Kv. hóf bónorð sitt til hennar — Grétu. Og við þessa tilhugsun gat hún ekki varizt hlátri. — Hvers vegna hlærðu? sagði Einar Lind, ofurlítið móðgaður. — Virðist þér hónorð mitt eitthvað hlægilegt? — Fyrirgefðu, sagði Gréta, full iðrunar, — en þú hlýtur að sjá það sjálfur, að þetta er næst'a broslegt, að þú sem ert eftirsóttastur allra ungra manna í Stenby, skulir biðja þér fyrir konu ómögulegustu stúlkunnar í Stenby, sem liefur ekki til að bera kvenlegan yndisþokka fyrir svo mikið sem tvo aura. — Og hverju svarar svo ómögulegasta stúlkan í Stenby bónorðinu? — Hún svarar auðvitað nákvæmlega gagnstætt því, sem aðrir mundu búast við af lienni; hún svarar því játandi, sagði Gréta hljóðlátlega, um leið og hann vafði hana að sér. Endurminningar Kristjáns S. Sigurðssonar. Ágrip af sjálfsæfisögu. (Niðurlag). Ég hefi áður getið þess, að Lovísa hafi verið góð húsmóðir. Hún var mér rneira en það, því að hún var mér eins og bezta móð- ir, og það var hún öllum hjúum sínum. Enda gerði ég allt, sem í mínu valdi stóð, til að þóknast henni, og marga snúninga fór ég fyrir' hana. Hún var ein af þeim konum, sent birgði sig upp á haustin með mat til ársins. Kjöt hafði hún æfinlega svo mikið, að það náði saman, þar til nýtt kjöt fékkst á haustin. Hún lét nrig salta allt kjöt sitt. Og oftast nær lét hún mig taka það til í matinn. Þó hafði hún tvær vinnukonur, og alltaf þær sömu. Báðar voru þær ágætar stúlkur. Og þó sagði hún stundum, að það væri eins og ég vissi betur en þær, hvað mátulegt væri að sjóða í einu. Alatarvist lijá henni var nreð afbrigðum góð. Og hún hafði alveg sérstakt lag á að gera matinn kraftmikinn og hollan. Hún sagði oft: ,,Það verður að koma döngun í þessa unglinga, svo að þeir hafi krafta til að vinna.“ — Og aldrei fannst henni við borða nógu mikið. Hún kom líka döngun í mig. Þegar ég kom þangað, var ég að vísu fullvaxinn; en ég var kraftalítill og heldur væskilslegur. En er ég fór þaðan, var ég með allra sterkustu mönnum. Það kom stundum fyrir, að mér áskotnað- ist 1—2 krónur fyrir að lyfta einhverju, senr aðrir gátu ekki lyft. Einu sinni kom Ólafur Daníelsson, systursonur Lovísu, heim úr Latínuskólanum og hélt til hjá þeinr hjón- um nokkrar vikur. Með honunr var Mattlrí- as Einarsson, sem líka var heima í fríi. Þeir voru kátir piltar og skemmtilegir og voru með alls konar leiki og íþróttir, og hafði ég ganran af að vera með þeinr, því að þá lrafði ég fengist olurlitla ögn við íþróttir. Einu sinni voru þeir að reyna sig á að lyfta steini. En hvorugur þeirra kom hon- um hærra en á knén. Bjóðast þeir þá til að gefa nrér sína krónúna livor, ef ég geti jafn- liattað steininn. Gerði ég það lriklaust og fékk fyrir það tvær spegilfagrar silfurkrón- ur. Annað sinn voru nokkrir menn að reyna

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.