Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Síða 27

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Síða 27
N. K.v. SVEINN SKYTTA 105 mig karlmennsku og hugrekki. Ég ætla ]d\ í að vinna mér nafn og afla mér frægðar með- al frænda hennar, svo að ég liækki í hennar augurn, og þá mun hún unna mér enn meira og heitara.“ Með þennan ásetning í ltuga hélt Sveinn að heiman yfir á Skán og gekk í lið með Gjöngemönnum, þessum hugrökku körl- mn. sem börðust af alhug og tilhneigingu á sama háttog Sveinn barðist fyrir. ást sinni. Hamingjan var honum holl og góð. Kon- ungurinn hafði opinberlega látið í ljós vel- þóknun sína og viðurkenningu, og gamli Christian Skeel hafði boðið honum heim til sín. Aðalsmennirnir fyrirgáfu honum skort aðalsmennskunnar og hina tvíræðu af- stöðu hans í þjóðfélaginu; þeir beygðu sig fyrir valdastöðu ríkisráðsins og umgengust því Gjöngeforingjann kumpánlega. Og nú hraðaði hann för sinni til hinnar fögru ást- meyjar sinnar, sem hann sá í liillingum í allri þeirri dýrð, sem henni var svo rnikil- væg og nauðsynleg. Og nú gat hann loksins hugsað sig sem elskhuga fyrir fótum hennar. Er Sveinn gekk þannig í draumheimi sín- um, varð þessi fagra mynd jafn óvænt sem skyndilega að raunveruleik fyrir augunr lians, þr í að í næstu beygju á skógarstígnum heyrði hann raddir, og rétt á eftir sá liann Júlíu Parsberg koma á móti sér, glaða og hlæjandi, og studda af karlmanni þeim, sem fylgdi henni, hún laut höfði og hlustaði á orð Iians með augnaráði því, sem Sveini var svo kunnugt áður fyrr og hafði þá haldið að væri sín einkaeign. Myndin var orðin að veruleika, aðeins með þeirri breytingu, að höfð voru manna- skipti. Lykke höfuðsmaður var kominn í Sveins stað. S\ einn Gjönge stóð sem steini lostinn við þennan óvænta fund, og sérstaklega sökurn augnaráðs liennar. En liann bældi niður til- finningar sínar og stillti sig að vanda, hvað svo sem að höndum bar. Hann hélt áfram og heilsaði alvarlega og virðingarfyllst, um feið og hann gekk fram lrjá. Júlía liafði þegar orðið Sveins vör. Hún varð einnig sýnilega dálítið óróleg, en hún áttaði sig brátt og brosti vingjarnlega, er hún svaraði kveðju lians, og mælti um leið og hún gekk fram hjá honum: „O, eruð það þér, Sveinn Gjönge! Vel- kominn heim aftur.“' Að svo mæltu hélt hún áfram göngu sinni með höfuðsmanninum. Rétt áður hafði Sveinn gengið hér glaður og vonreifur, svo að bjarmaði af karlmann- leg'u andliti hans. En nú var honnm brugð- ið, svo að hann var tæplega aftur þekkjan- legur. Fölur og lvnugginn og brúnaþungur liélt hann áfram leiðar sinnar út úr skóg- inum. Júlía hafði átt fremur leiðinlegan vetur á Jungshöved, sem var setinn af erlendum Iiermönniu.n, og hún hafði fýrir löngu séð eftir því, að hún skyldi yfirleitt liafa farið burt úr höfuðborginni. Að vísu höfðu liinir sælisku höfuðsmenn sýnt hénni fyllstu ridd- aralega kurteisi, svo sem forkunnarfagurri aðalsmey bar. En samt liafði veturinn verið tilbreytingalaus og gleðisnauður. Óðar er fréttin barst, að friður væri í vændum, kom Lykke höfuðsmaður til hallarinnar. Og þar eð hann var einn þeirra, er eigi þurfti annað en sýna sig til að sigra, og var óspar á gull- hamra og kurteislegt fas og skrúðmælgi, tók Júlía við öllu þessu lriklaust og fagn- andi. Þetta var svo kærkomin úrbót á leið- indum vetrarins, þar sem hún hafði nær aldrei fengið tækifæri til að beita augum sínum, fegurð sinni og skrautklæðum marg- \'íslegum. Júlía hafði notið afar óheppilegs uppeld- is. Hún var yngsta dóttir, sem gælt hafði ver- ið við og dekrað og lögð öll rækt við líkam- legt uppeldi á kostnað sálar hennar og and- legra liælileika. Hún hafði því alla þá ytri glæsimennsku og fegurð til að bera, senr alla 14

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.