Nýjar kvöldvökur - 01.05.1960, Page 11
N. Kv.
SÍRA SIGTRYGGUR GUÐLAUGSSON
65
heitmey sinni, Ólöfu Júlíönu Sigtryggsdótt-
ur frá Steinkirkju í Fnjóskadal. Reistu þau
bú á Þóroddsstað. Ólöf var góð kona og mik-
ilhæf, en naut sín ekki í búskapnum vegna
vanheilsu. Hún veiktist af berklum og dó
hinn 23. nóv. 1902 eftir langa sjúkdónrslegu
og nriklar þrautir. Tregaði síra Sigtryggur
hana mjög, því að hjónaband þeirra hafði
verið farsælt. Þeim varð ekki barna auðið.
Síra Sigtryggur var einlægur trúmaður,
rækti prestsstörf sín af nrikilli skyldurækni
og þótti mikið til hans komá, en alltaf var
kennslan Iians áhuganrál. Fyrsta prestsskap-
arárið kenndi hann börnunr, þegar hann var
lieinra, og á Þóroddsstað hóf lrann unglinga-
kennslu. Hann stofnaði unglingaskóla á
Ljósavatni með lýðskólasniði og kenndi þar
tvo síðustu veturna, sem hann var fyrir
norðan. Eitt fyrsta fernringarbarn síra Sig-
tryggs frá þeinr árunr minnist hans þannig:
„Mér finnst hann vera eini presturinn, er
ég hef þekkt, og enn stendur hann mér fyrir
liugskotssjónum sem persónugervingur alls
hins bezta í kenninrannastétt, allt frá upp-
Iiafi kirkjunnar."
Prestsstörj í Dýrafjarðarþingum.
Eftir lát konu sinnar langaði síra Sigtrygg
mest til þess að komast í grennd við Kristin
bróður sinn, senr þá hafði keypt Núp í Dýra-
firði og búið þar nokkur ár. Hafði alla tíð
verið nrjög kært með þeinr bræðrum. Þá
vildi svo til, að Dýrafjarðarþing losnuðu
1904. Sótti síra Sigtryggur um þau og var
veitt embættið frá 7. okt. 1904, en fluttist
ekki vestur fyrr en vorið eftir. Settist hann
þá að lrjá bi'óður sínum á Núpi. Þar hófst
það starf, sem lengst mun halda nafni hans
á lofti. Prestsstörfin rækti lrann sem fyrr af
mikilli alúð, og þótti hann mikilhæfur
kennimaður. Ég var eitt af fyrstu fermingar-
börnum hans og man vel þær stundir, sem
hann var að kenna okkur undir ferminguna.
Eg minnist trúaralvörunnar, skapfestunnar,
einlægninnar og ástúðarinnar í svip hans.
Svo rnunu og önnur fermingarbörn minnast
hans.
Hann var prestur í Dýrafjarðarþingum
nær 34 ár; fékk lausn frá embætti frá 1. júní
Ólöf J. Sigtryggsdóttir.
Fyrri kona síra Sigtryggs Guðlaugssonar.
1938. Hann var skipaður prófastur í Vestur-
ísafjarðarprófastsdæmi frá .12. sept. 1929.
Encla þótt hann gegndi öðru starfi jafnframt
prestsskapnum, vanrækti hann á engan hátt
prestsstörfin. Hann var trúr köllun sinni til
hinztu stundar. Ein af þremur sóknarkirkj-
unr hans var að Sæbóli á Ingjaldssandi. Er
þangað yfir fjallveg að fara, Sandsheiði, og
alltaf farið gangandi að vetrinum. Síra Sig-
tryggur mun lrafa farið um þúsund sinnum
yfir heiði þessa, rneðan hann var prestur á
Núpi. Af því nrá vel marka, að hann hefur
ekki vanrækt kirkjur sínar, sem nær lágu.
Hann vann mikið að byggingu hinnar nýju