Nýjar kvöldvökur - 01.05.1960, Blaðsíða 24
ÍSLENZKIR ÆTTSTUÐLAR
N. Kv.
Grænlandsbiskupi, umboðsmanni Skálholts-
biskups.78) Hann er einn þeirra, sem til-
nefndir voru til skipta eftir Björn hirðstjóra
Þorleifsson í Vatnsfirði 23. október 1467.7°)
4. febrúar 1468 er hann vottur í Hvammi í
Vatnsdal að jarðakaupum Þorleifs Björns-
sonar og Egils Grímssonar og undinitar
hann kaupbréfið á Þingeyrum 6. s. m.80)
Árið 1471 hefur Gísli sýsluvöld milli Gils-
fjarðar og Langaness og tekur eiðfestan vitn-
isburð 19. og 20. febrúar þ. á. á Reykhólum.
24. maí 1472, í Haga á Barðaströnd, seldi
og handlagði Sigríður Þórðardóttir, bræðr-
unga Gísla, honum lögveð upp í fjórðung-
inn í jörðinni Haga, sem foreldrar hennar
hiifðu gefið henni til kaups við Orm Bjarn-
arson á sínum tíma. Var svo til skilið, að
fjórðungur þessi kæmi til tryggingar þeim
v málnytukúgildum, ,,er Gísli átti undir áð-
urnefndri Sigríði og hún meðkenndist þar
fyrir oss nefndum mönnum, með þeim skil-
mála, að hvað sem af færist fyrrsögðum kú-
gildum eða öðrum peningum þeirn, sem
Gísli fengi henni, skyldi það allt koma upp
í fyrrgreint jarðarverð og lögveð þar til hún
hefur fullar tölur fyrir greindan jarðarpart.
Skyldi áðurgreind Sigríður kaupa að Gísla
fyrstum hvað hún þyrfti með og hann hefði
til, og hún skyldi hafa af honum kúgildi
fyrstum til leigu, en engum rnanni öðrum.
Skyldi þessir peningar oftnefnds Gísla með
engu öðru leysast en þráttnefndum fjórð-
ungi jarðar, er Sigríður átti í Haga á Barða-
strönd, hundrað fyrir Inmdrað.“81)
7. ágúst 1473, í Haga á Barðaströnd, seldi
Þórður Sigurð'sson með samþykki Ingibjarg-
ar Halldórsdóttur konu sinnar og Sigríðar
dóttur sinnar Gísla hálfan Haga á Barða-
strönd. Fyrir það gaf Gísli með samþykki
Ingibjargar Eyjólfsdóttur, konu sinnar, xl
hundruð, 24 hundraða jörð, Botn í Patreks-
firði, og þar til xx fríð kúgildi og skip fyrir
hálft fjórða-hundrað, kúgíldishest og þar til
78) D. I. V, bls. 369-370.
79) D. X. V, bls. 499.
80) D. I. V, bls. 515.
81) D. I. V, bls. 667-668.
hálft annað hundrað, Og skyldi Gísli svara
kirkjureikningum.82) í fyrirsögninni að
bréfi þessu segir, að Þórður hafi selt Gísla
jarðarhelminginn fyrir níutygi hundraða
alls, en það mun vera misskilningur. í bréf-
inu stendur ,,xl“, sem líklega er svo að skilja,
að átt sé við helming bóndahlutans í jörð-
inni, sem metinn er 80 hundruð eftir jarða-
bók Árna Magnússonar og Páls Vídalín.
Hinsvegar hefur verið gefið samtals 50
hundraða virði í fasteign og lausafé fyrir
þennan helming, eins og upp er talið í bréf-
inu.
Gísli er orðinn ncíndarmaður 1478 og er
þá í alþingisdómi.83) Þá er hann einnig
nefndur af hirðstjóra til að virða Guðmund-
arpeninga ásamt 11 öðrum mönnum.84) 21.
janúar 1479 vottar Gísli það ásamt 3 öðrurn
mönnum í Hvammi í Hvammssveit, að
hann hafi verið í Hjarðarholti í Laxárdal
24. september 1478 er samningur var gerður
milli Magnúsar biskups Eyjólfssonar og
Guðna Jónssonar um hluta úr Hjörsey á
Mýrum.85) 3. október 1478 er Gísli vottur
að því á Helgafelli, að Magnús biskup gaf
manni jörð.8G) Daginn eftir, á sama stað,
gaf 'biskup Gísla og Ingibjörgu systur sinni
jörðina Höskuldsstaði í Laxárdal og 18
hundruð í Miðhlíð á Barðastönd.87)
Á Alþingi 1479 gekk dómur um víg, sem
Gísli Filippusson veitti meðgöngu, að hann
hefði „ófyrirsynju í hel slegið“ Bjöm Vil-
hjálmsson, en Einar Þórólfsson hafði áður
Jýst víginu á hendur sér. Dómsmenn segja
bæturnar hafa verið að fullu luktar og grið
hafi verið sett og færa fram afsökun fyrir
því, að Gísli lýsti ekki víginu strax á hend-
ur sér. Gísli var dæmdur löglega ferjandi til
Noregs „og þar á kirkju og komi svo til
míns herra kóngsins náða.“88) Á sama Al-
82) D. I. V, bls. 712-713.
83) D. I. VI, bls. 138.
84) D. I. VI, bls. 141.
85) D. I. VI, bls. 160-161.
86) D. I. VI, bls. 164.
87) D. I. VI, bls. 166-167.
88) D. I. VI, bls. 212-213.