Nýjar kvöldvökur - 01.05.1960, Side 25
N. Kv.
ÍSLENZKIR ÆTTSTUÐLAR
79
þingi kvittar Þorleifur Björnsson hirðstjóri
um þegngilcli fyrir vígið.89)
16. október 1479 votta það nokkrir menn
í Haga á Barðaströnd, að þeir heyrðu, að
Jón Ólafsson og Hallfríður Þórðardóttir,
kona hans, viðurkenndu, að þau hefðu feng-
ið Gísla Filippussyni jörðina Botn í Pat-
reksfirði gegn ævinlegu framfæri og pró-
ventu hjá Gísla og konu hans og örfum
þeirra. Ef Botn gengi af átti hann að eiga að-
gang að Hvalskeri í Patreksfirði og svo nrik-
ið upp í Dufansdal í Otrardalskirkjusókn
sem dýrleikamunur væri á Botni og Hval-
skeri.90)
10. apríl 1480 er Gísli á Skarði á Skarðs-
strönd í skiptum eftir Ólöfu Loftsdóttur.91)
17. apríl s. á. lýsir Þorleifur Björnsson yfir
því á Skarði, að hann hafi selt Gísla Filippus-
syni jörðina Keflavík á Rauðasandi og kvitt-
ar hann um andvirðið.92)
Gísli er í alþingisdómi 3. júlí 1480 og
undirritar dómsbréfið á Lundi í Lundar-
reykjadal 4. s. m.93) Sama dag, einnig á
Lundi, fær Þorleifur Björnsson Gísla til
eignar jörðina Sauðlauksdal í Patreksfirði
og kvittar hann um andvirðið.94) Enn er á
sama stað og á sama degi undirritað bréf til
konungs um útlen/.ka vetursetumenn, og
er Gísli meðal hinna 24 sýslumanna og lög-
réttumanna, sem undirrita.95)
Kristján konungur fyrsti gefur út land-
vistarbréf til handa Gísla Filippussyni vegna
vígs Björns Vilhjálmssonar 19. nóvember
1480 í Kaupmannahöfn.96)
7. ágúst 1481, í Skálholti, seldi Magnús
biskup Eyjólfsson Gísla Filippussyni jörð-
ina Guðlaugsstaði í Plrútafirði, 24 hundruð
að dýrleika, fyrir hálfa jörðina Þingnes í
89) D. I. VI, bls. 213.
90) D. I. VI, bls. 229.
91) D. I. VI. bls. 255.
■92) D. I. VI, bls. 279.
93) D. I. VI, bls. 279.
94) D. I. VI, bls. 280-281.
95) D. 1. VI, bls. 281-285.
96) D. I. VI, bls. 305-306.
Borgarfirði, 30 hundruð.97) Það er líklega
ekki Gísli í Haga Filippusson, sem 28. októ-
ber 1482, á Hofi í Vatnsdal, er vottur að
jarðakaupum, en þó verður það ekki sagt
með fullri vissu.98)
Gísli í Haga er vottur að sættargerð Þor-
leifs Björnssonar og Andrésar Guðmunds-
sonar á Reykhólum 16. apríl 1483.99)
6. október s. á. er Gísli í Skálholti og gef-
ur þá Dýrfinnu dóttur sinni í heimanfylgju
til móts við Jón Jónsson jörðina [Sauð-
lauksjdal,100) 36 hundruð, og Keflavík, 12
hundruð, á Rauðasandi, og þar til 12 hundr-
uð í þarflegum peningum.- Þá gáfu þau hjón,
Dýrfinna og Jón, kvitta og ákærulausa jörð-
ina Bíldudal fyrir sér og sínum erfingjum.
Bréfið um gerninginn er skrifað í Holti
undir Eyjafjöllum 7. marz 1484.x)
1. október 1482, í Haga á Barðaströnd,
gefur Magnús biskup Eyjólfsson Ingibjörgu
systur sinni jörðina Bæ í Borgarfirði með
tveimur jörðum, er þar undir liggja, Lang-
holt og Hvítárbakka, „sem Einar Björnsson
oss fékk með greindri jörðu Bæ“, að svo
fyrir skildu, að Ingibjörg skyldi gefa Eyjólfi
Gíslasyni, syni sínum, jörðina Bæ, ef hann
kvæntist að ráði biskups og Gísla föður
síns.2) Sama dag gefur biskup Ingibjörgu
einnig jarðirnar Haukaberg og Hrakstaði á
Barðaströnd, eða þær jarðir, sem Einar
Björnsson leysir þær fyrir innan 5 ára.3)
6. október 1487, í Múla á Skálmarnesi,
staðfestir Gísli gerninginn um jörðina Kefla-
vík á Rauðasandi við Dýrfinnu dóttur sína
og Jón Jónsson, mann hennar, og voru þá
viðstaddir Magnús biskup og síra Loftur
bróðir Gísla.4)
Framhald.
97) D. I. VI, bls. 393-394.
98) D. I. VI, bls. 456-457.
99) D. I. VI, bls. 477.
100) í skjalinu stendur: „.... dal,“ en á eflaust að
vera Sauðlauksdalur.
1) D. I. VI, bls. 501-502.
2) D. I. VI, bls. 604-605.
3) D. I. VI, bls. 605-606.
4) D. I. VI, bls. 607.