Nýjar kvöldvökur - 01.05.1960, Page 33
N. Kv.
ANDRÉSÁ BREKKU
87
að taka allt í land. Var þá útilegan ekki
nema sólarhringur eða svo. Þegar á leið
vorið mátti skera niður, og var þá legið úti
allt að viku, til að fylla skipin, en þau tóku
allt að 50 tunnum. Lýsi var brætt úr lifr-
inni og var það ein aðalverzlunarvaran á-
sarnt verkuðum hákarli. Þá var lítill mark-
aður fyrir kindakjöt og bústofn var fremur
lítill. Þá var fært frá á hverju heimili.
Andrés réðst vinnumaður að Hrófbergi,
þegar móðir hans fluttist þangað, og hafði
í árslaun 6 vættir eða 72 krónur. Hann var
þar í sjö ár og var kaupið 100 krónur síðasta
árið.
Veturinn 1893, eftir nýjár, var Guðrún
Halldórsdóttir frá Grónesi í Gufudalssveit í
Barðastrandarsýslu barnakennari að Hróf-
bergi. Felldu þau Andrés hugi saman og
trúlofuðust. Guðrún var fædd í Gautsdal í
Geiradalshreppi 29. júní 1869. Foreldrar
hennar voru Halldór Bjarnason pr. í Garps-
dal, Eggertssonar pr. síðast í Stafholti,
Bjarnasonar landlæknis Pálssonar, og Rann-
veig Þorsteinsdóttir prests í Gufudal (Thor-
steinsonsætt).
Foreldrar Guðrúnar fluttust að Grónesi
þegar hún var tveggja ára og bjuggu þar sex
eða sjö ár, fluttu þá að Gufudal. Þá var þar
prestur Oddur Hallbjamarson, faðir Benja-
míns Oddssonar, sem lengi var í Reykhóla-
sveit, o£ Hallbjarnar á Akranesi. Hjónin
voru fjögur ár í Gufudal, en fluttust síðan
að Grónesi og svo að Barmi við Djúpafjörð
og loks aftur að Grónesi.
Guðrún hafði verið til náms í Gufudal
hjá síra Guðmundi Guðmundssyni og hún
hafði líka lært ljósmóðurfræði. Hún var
sönghneigð og var lengi forsöngvari í
Gufudalskirkju. Systkini Guðrúnar dóu í
bernsku.
Vorið 1894 fluttist Andrés að Grónesi og
giftust þau Guðrún um haustið. Síðan
bjuggu þau að Grónesi til 1904, í sambúð
við foreldra Guðriinar eða tvíbýli seinni
árin. Grónes er lítil jörð, 12 lindr. að fornu
rnati. Áhöfn var um 2 kýr, 70 fjár og 3—4
hross. Varð þá að fá lánaðar slægjur á
Brekku, til að geta framfleytt þessum bú-
stofni. Er Andrés kom að Grónesi, áttu
tengdaföreldrar hans þriðjung jarðarinnar,
en síðan keyptu þau, ásamt Andrési og Guð-
rúnu, alla jörðina. Meðán Andrés var á
Grónesi, reri liann eitt vor í Bolungavík,
hjá Árna Gíslasyni fiskimatsmanni.
Vorið 1904 losnaði Brekka úr ábúð og
bauð síra Guðmundur í Gufudal þeim
Andrési og Guðrúnu þá jörðina til ábúðar.
Tóku þau því boði og fluttust þangað um
vorið. Halldór faðir Guðrúnar fluttist
þangað með þeim, en kona hans hafði and-
azt á Grónesi.
Eftir að þau Andrés og Guðrún fluttust
að Brekku, höfðu þau Grónes með, en jrar
var húsfólk fyrstu árin, og fékk Jrað lánaða
nokkra grasnyt. Á Grónesi eru nokkur
hlunnindi af æðarvarpi, og réð það mestu
um, að Andrés vildi halda afnotum jarðar-
innar.
Á Brekku voru húsakynni mjög léleg, og
vildi enginn fara með Andrési þangað nema
hann byggði jxu- upp áður. Byggði hann þá
núverandi bæ á nýjum stað. Gamli bærinn
stóð nokkru utar á vellinum, þar sem
smiðjukofi stendur síðan. Þau hjón keyptu
jörðina 1909.
Brekka er falleg jörð og búsældarleg,
innst við austanverðan Gufufjörð. Þar er
ágætt land til ræktunar og beitiland mikið
og gott. Landið er víða vaxið fjalldrapa,
víði og birki, og er þar sumarfagurt.
Andrés tók þar við litlu og þýfðu túni og
lélegum byggingum, en þetta breyttist allt
til bóta, eftir að hann settist þar að. Hann
byggði upp hvert hús á jörðinni af miklum
myndarbrag á þeirrar tíðar hátt, sléttaði
túnið og stækkaði það og gerði Brekku að
fyrirmyndarbýli, en engan þarf að furða,
þótt hús þau, sem liann reisti í byrjun ald-
arinnar, þyki ekki fullnægja kröfum nú-
tímans.
Ásarnt búskaparönnum hlóðust fljótt á
Andrés opinber störf. Hann var formaður