Nýjar kvöldvökur - 01.05.1960, Síða 38

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1960, Síða 38
92 BÖÐVAR BJARKAN N. Kv. nokkru leyti eða kæmi henni á réttan kjöl, sem kannske er réttara að orði komizt. Einn- ig ritaði hann þaulhugsaða tillögu til úr- lausnar á gjaldeyrismálum, sérprentaðan bækling um lögskráð dagsgengi miðað við fasta stofnkrónu. Er það frumlegt og raunar stórmerkilegt rit. En þó að Böðvar væri mikill lagamaður og ekki síður framsýnn og hugkvæmur varð- andi atvinnu- og framfaramál þjóðarinnar, beindist hugur hans mjög ákveðið að list- rænum og heimspekilegum efnum, og hygg ég, að ekkert hafi verið honum hugstæðara en að gerast rithöfundur, enda var honum létt um að rita og rímhagur var hann í snjallasta lagi. En með þá gáfu fór hann svo dult, að um hana vissu ekki aðrir en nánir vinir, enda tók hann sig aldrei hátíðlega sem Ijóðasmið og iðkaði þá list einungis sér til hugarhægðar, en af engu kappi, og mun því ljóðagerð hans ekki hafa verið mikil að vöxtum. Þar var þó vissulega til staðar bæði bragsnilld og hugmyndaauðgi, og væri þess vegna freistandi að birta sumt, sem eftir hann liggur á því sviði. Verður því þó sleppt hér að mestu, bæði af nýgreindri og ýmsum öðrum ástæðum. En til að láta það á sannast, að ég sé hér ekki í neinu reykjar- kafaldi, get ég ekki stillt mig um að til- greina tvö eftirfarandi sýnishom: SVANALJÓÐ Eg hlusta fanginn á svanasönginn, hans seiður angar af vötnum blám, sem bárur hrynji, sem bylgjuþröngin og brjóstin stynji af duldum þrám. Ég hlusta fanginn á svanasönginn, hans seiður angar af vötnum blám. Ó, sorg, þú ómar í svanaljóði, með silfurhljóm yfir vötn og jörð. Við kveldaglóðir, í geislaflóði, er glituð blóði hin hvíta hjörð, og sorgin ómar i svanaljóði með silfurhljóm yfir vötn og jörð. Þar svífur andi á vatnavogum, sem vængi þandi um loftin blá. Og eldur logar í unnarsogum, en óma vogar af himinþrá, er svíftir andinn á vatnavogum, sem vængi þandi um loftin blá. MANNAMUNUR (Sléttubönd) Annar: Valdur sára aumra er, aldrei fárin smækkar, kaldur báru sorgar sér, sjaldan tárum fækkar. Hinn: Fækkar tárum, sjaldan sér sorgar báru kaldur, smækkar fárin, aldrei er aumra sára valdur. Fyrir víst tvö Ijóð önnur eftir Böðvar liafa komið á prent, en aðeins sem söngtextar, og á þessum tónmenntatímum er slík útgáfa eitthvað viðlíka til athyglis og að hengja myndlistarverk upp í gluggalausu húsi. Tvennt var það, sem mér fannst sérstaklega athyglisvert við hið litla, sem ég kynntist af ljóðagerð Böðvars, í fyrsta lagi: livað hann hafði náð miklum séreinkennum, jafn lítið sem hann í rauninni iðkaði þessa list, og svo hitt: hve létt honum var um að setja saman gagnræðar sléttubandavísur, enda hafði hann eins konar nautn af því. Annars var listhneigð hans býsna marg- hliða, svo að jafnvel garðurinn kringum hús þeirra hjóna jaðrar við að vera listaverk. Raunar grunar mig, að frú Kristín liafi þar komið allmikið við sögu, og man ég ekki betur en Böðvar eignaði henni ríflegan bróðurpart af þeim framkvæmdum, enda var margt sameiginlegt með þeim hjónum, og voru þau samrýmd í bezta lagi. Böðvar Bjarkan var í hærra meðallagi. fremur grannvaxinn, en svaraði sér þó vel. Framkoma hans út á við var hógvær og yfir- lætislaus, en þó eitthvað við hana, sem vakti

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.