Tjaldbúðin - 01.01.1902, Blaðsíða 25
— 23
fræðispróf (í sama skóla og sira Páll) og prest-
vígslu 1882. Hann fór síðan snögga ferð lieim
til íslands og dvaldi þar næsta vetur. En í
ágústm. 1883 kom hann aptur til safnaða sinna og
var prestur þeirra í þrjú ár. 1886 tók hann
»kall frá norskum söfnuðum í Sioux Falls, Dak,,
og þar í grendinnP og flutti þangað suður.
Síra Hans er höfundur: »Hins ev. lút. kirkju-
fjelags íslendinga í Vesturheimi«, Um það far-
ast »Sameiningunni« þannig orð: Síra Hans
Thorgrímsen gekkst (1884) »fyrir því, að íslenzku
söfnuðirnir, scm myndazt höfðu hjer í landi, gengi
1 fjelag, myndaði allir eitt íslenzkt lútersk kirkju-
fjelag«. A safnaðarfundi í Víkur-söfnuði »lagði
hann það til, að söfnuðurinn kysi nefnd manna,
til þess í sameining við nefndir frá öðrum
söfnuðum að semja frumvarp til kirkjufjelagslaga.
í þá nefnd vóru kosnir: Síra Hans Thorgrímsen,
Halldór Reykjalín, Frh. Björnsson, Haraldur Þor-
láksson og Jón Pálmason. fetta leiddi til þess,
að mönnum kom saman um að halda fund með
sjer, þar sem erindsrekar hinna ýmsu safnaða ætti
sæti, til þess að komizt yrði að niðurstöðu um,
hvort unnt væri að sameina söfnuðina í eina
kirkjulega heild. Samkvæmt tilboði safnaðarins
var fundur þessi haldinn á Mountain 23. janúar
1885 og næstu daga«. »f’að var hinn fyrsti
allsherjarfundur, sem haldinn var með íslendingum