Tjaldbúðin - 01.01.1902, Blaðsíða 16

Tjaldbúðin - 01.01.1902, Blaðsíða 16
14 (»Leifur«, 2. ár. nr. 10). Allmikið var síðan rætt og ritað um skólamálið. Meðal annara rituðu þeir M. Pálsson og S. J. Jöhannesson góða grein fyrir hönd nefndarinnar (»Leifur«, 2. ár. nr. 12). Á kirkjuþingi 1887 tók kirkjufjelagið skóla- hugmynd F. B. Anderson’s að sjer. »Samein- ingin« var í fyrstu allmikið keypt, meðan lexíurnar fyrir sunnudagsskólann vóru skýrðar í henni. Hún átti sakir þess dálítið í sjóði. Kirkjuþingið samþykkti »að greiða síra Jóni 100 dollara úr sjóði« blaðsins í þeim tilgangi, að »hann þegar í stað gæfi þessa peninga til þess að vera grund- völlur til sjóðs, er myndaður yrði til undirstöðu æðri íslenzkrar menntastofnunar (College) hjer í landinu í sambandi við kirkjufjelagið og undir yfir- umsjón þess«. Síra Jón gerði það tafarlaust. Mjög lítið nriðaði skólamáli þessu áfravn í þrjú ár (1887—1890). Enginn gaf neitt í skóla- sjóðinn á þessu tímabili nenva síra Jón Stein- grímsson í Gaulverjabæ á íslandi. En á kirkju- þingi 1890 færðist nýtt líf í skólamálið. Var það að þakka góðum bendingunr Jóns ritstjóra Ólafs- sonar. Sanrskotin í skólasjóð gengu allvel árin 1890—1892. Og er gerð grein fyrir því í »Lög- bergi« 12. maí 1894. Á kirkjuþingi 1893 var samþykkt að kaupa bókasafn síra Eggerts Briem’s. I’að var eptir orðsending Sigtryggs og síra Jóns. Hvorugur

x

Tjaldbúðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tjaldbúðin
https://timarit.is/publication/530

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.