Tjaldbúðin - 01.01.1902, Blaðsíða 27
— 25
Winnipeg, 1 í Argyle og 5 í Nýja íslandi. Á
kirkjuþingunum 1885—1894 mættu að meðaltali
crindsrekar frá 14 söfnuðum, eins og á fyrsta
kirkjuþingi. Að því er kirkjuþingssókn snertir,
stóð fjelagið öll þessi ár í stað. Tala safnaðanna
í »ársskýrslum forseta® hefur ávallt verið of há, eins
og skýrslur þær eru mjög óáreiðanlegar á margan
annan hátt (»Tjaldbúðin« V. bls. 7). — Einn
þriðji hluti Vestur-íslendinga eru í kirkjufjelaginu
(»Tjaldbúðin« V. bls. 34). — Á kirkjuþingi þessu
var, eptir tillögu Baldvins Baldvinssonar, samþykkt
að gefa út kirkjulegt tímarit, »Sameininguna«.
»Kirkjutíðindi fyrir ísland« 1878—1880 vóru
fyrirmynd hennar. Fyrsta ritnefnd »Sam.« var:
Baldvin, síra Jón (ritstjóri), Friðjón Friðriksson og
Páll S. Bardal. Síra Hans varð »vegna heimilis-
ástæðna« að fara af kirkjuþinginu, áður en kosn-
ing embættismanna fór fram. Síra Jón var því
kosinn formaður kirkjufjelagsins, en Magnús Páls-
son varaformaður.
2. kirkjuþingið var haldið á Garðar í Norður-
Dakota 1880. Síra Hans var þá fluttur burt
frá íslenzku söfnuðunum í Dakota. Og síra Frið-
rik J. Bergmann* var orðinn prestur í stað hans.
Á kirkjuþingi Jressu mættu 2 prestar, síra Jón
* Hann tók það ár próf í guðfræði (við prestaskóla
í Philadelphia) og síðan prestvígslu.