Tjaldbúðin - 01.01.1902, Blaðsíða 8

Tjaldbúðin - 01.01.1902, Blaðsíða 8
6 vesturferðum. Sakir þess fluttist enginn rnaður til Alaska frá íslandi. Jóhannes Arngrímsson, sem hafði farið vestur 1872, var sendur til íslands. Hann var »agent« stjórnarinnar í Nýja Skotlandi 1875 og »útbýtti prentaðri skýrslu um landkosti þar«. Hann kom eigi miklu til leiðar. »Norð- lingur« byrjaði 1875 að koma út á Akureyri. Hann tók svari íslands (eins og »sunnanblöðin« gerðu) gegn »agentunum«. Benedikt sýslumaður Sveinsson tók og (eptir boði amtmannsins) í taum- ana gegn ólögum þeim, er »agentarnir« beittu við smalamennsku sína. Útflutningslög vóru sam- þykkt á Alþingi 1875 (staðfest 14. jan. 1876). Vesturferðir urðu litlar 1875, um 35 manns. Árið 1876 vóru þrír íslenzkir »agentar« heima á Islandi: Saniúel Bjarnason (fluttist vestur 1854) og Pórður Diðriksson (hafði og verið »agent« 1857). Peir vóru báðir »agentar« frá Utah i Bandaríkjunum. I’riðji »agentinn« var Sigtryggur Jónasson (fluttist vestur 1872). Hann var »agent« Kanada-stjórnar og hafði meðferðis prentaða lýsing á »Nýja íslandi í Kanada«. Hann var þeirra »langduglegastur«, ferðaðist fram og apt- ur um Norður- og Austurland og æsti menn ákaft til vesturferðar. Hann kom mjög miklu til leiðar: Um 1200 manns fluttust vestur um haf sumarið 1876. Næsta ár fóru aðeins 60 manns vestur, enda var þá (1877) lítið um »agenta« á íslandi.

x

Tjaldbúðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tjaldbúðin
https://timarit.is/publication/530

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.