Tjaldbúðin - 01.01.1902, Blaðsíða 6
4 —
Islandi og 1 frá Höfn) — »Norðanfari« var með-
mæltur Brasilíu-ferðum —. Á árunum 1865—1872
tíndust þangað nokkrir menn, 1870—1872
settust 27 íslendingar að í Wisconsin í Banda-
ríkjunum. Og 1872 settist fyrsti íslendingurinn
að í Kanada.
íslendingar í Bandaríkjunum og Brasilíu rit-
uðu mörg brjef til ættingja sinna og vina á ís-
landi og hvöttu mjög til vesturferðar. Bijef þessi
vóru allmörg prentuð í »Norðanfara« veturinn
1872—1873. Blaðið mælti þá ákaft með vestur-
ferðum og flutti allmargar greinar um Vestuiv
heim. Vesturfarar skiptust í tvo flokka: Sumir
vildu fara til Bandaríkjanna og Kanada aðrir til
Brasilíu. Páll og Haraldur, synir Þorláks Jóns-
sonar á Stóru-Tjörnum, höfðu farið vestur árið
1872. Mörg brjef frá þeim (til föður þeirra)
vóru prentuð ( »Norðanfara«. í’orlákur einsetti
sjer að fara vestur til sona sinna og vildi fá sem
flesta til farar með sjer. Hann tók því, ásamt 2
öðrum mönnum, að vinna ákaft að vesturferðum.
»Allanlínan« bauðst (7. des. 1872) til að flytja
menn vestur um haf með allgóðum kjörum. Guð-
mundur Lambertsen var umboðsmaður hennar.
Safnað var á lista nöfnum fjölda manna, er lofuðu
að fara tilBandaríkjanna eðaKanada sumarið 1873.
Á hinn bóginn lofaði stjórnin í Brasilíu þeim ís-
lendingum, er flyttust þangað, ókeypis flutningi.