Sjómannadagsblaðið - 06.06.1948, Blaðsíða 5
ÞJÓÐVILJINN — blað Sameiningarflo\l{s alþýðu — Sósíálista-
flo\\sins nýtur sívaxandi útbreiðslu og álits, sem aðalmdJgagn hinnar
róttœ\u og stórhuga alþýðu íslands.
Fyrir rúmum ellefu árum hóf Þjóðviljinn göngu sína á ný, sem dagblað
róttæks og stórhuga verkalýðs. Nafnið gaf Theódóra Thoroddsen, hin
þjóðkunna ágætiskona, er unnið hafði með manni sínum að hinum
margþættu störfum hans, verið hans önnur hönd við Þjóðviljann eldri.
Theódóra sá og skildi, að einmitt hin róttæka alþýða íslands til sjávar og
sveita hélt áfram starfinu, sem þau Skúli höfðu varið ævi sinni til, —
að alþýðan ein var þess megnug að berjast til úrslitasigurs fyrir íslenzkan
málstað og óskoruð mannréttindi.
Þannig er nýi Þjóðviljinn tengdur blaði Skúla Thoroddsen, og sívax-
andi útbreiðsla blaðsins er vitnisburður íslenzku alþýðunnar um það, að
hún telur blaðið ekki kafna undir nafni.
Gerist áskrifendur með því að skrifa eða síma i afgreiðslu Þjóðviljans,
Skólavörðustíg 19, Reykjavík, sími 7500, 3 iínur.
ÞJÓÐVILJINN
— blað íslenzkrar alþýðu —
SJÓMAN N ADAGS BLAÐI £>